Frétt
·
ON tók þátt í Vísindavöku Rannís

Orka náttúrunnar tók þátt í Vísindavöku Rannís um síðustu helgi þar sem gestum gafst tækifæri til að kynnast starfsemi ON og fræðast um orku, auðlindir og þau fjölbreyttu verkefni sem við vinnum að.
Verkefni ON og starfsemi fyrirtækisins voru að þessu sinni sýnd í gegnum starfsemi Jarðhitasýningarinnar en einnig voru Orkuveitan, móðurfélag ON, og önnur félög innan samstæðunnar með okkur á Vísindavöku. Það var því fjölbreyttur hópur sem tók á móti gestum og miðlaði fróðleik um starfsemina og þau fjölmörgu verkefni sem unnið er að innan samstæðunnar.
Vísindavaka er haldin árlega á vegum Rannís og þar kemur saman vísindafólk, fyrirtæki og stofnanir til að miðla rannsóknum, vísindum og nýsköpun til almennings á lifandi og aðgengilegan hátt. Vísindavaka er hluti af Researchers' Night sem haldin er víða um Evrópu síðustu helgina í september.
Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá áhuga gesta á starfsemi ON og fá tækifæri til að eiga samtal við fólk á öllum aldri. Viðburðir á borð við Vísindavöku eru mikilvægur vettvangur til að miðla þekkingu, svara spurningum og vekja forvitni um orku, náttúruauðlindir og þær lausnir sem geta stuðlað að sjálfbærari framtíð.
Við hjá ON þökkum Rannís kærlega fyrir vel heppnaða Vísindavöku og öllum þeim sem komu við hjá okkur.
Við hlökkum til næstu Vísindavöku!

















