Frétt
·
Sep 8, 2025
ON á forsíðu Energy Digital
ON á forsíðu Energy Digital

Orka náttúrunnar og Jarðhitagarður ON leika stórt hlutverk í nýjasta tölublaði Energy Digital í grein eftir Steven Downes sem fjallar um Ísland sem land elds, íss og loftslagsnýsköpunar. Greinin rataði á forsíðu blaðsins en í henni er áhersla lögð á það leiðandi hlutverk sem Orka náttúrunnar gegnir í sjálfbærri orkuframleiðslu og nýsköpun.
Í greininni er sérstaklega fjallað um Jarðhitagarð ON við Hellisheiðarvirkjun, sem er grænn iðngarður þar sem miðað er að því að fullnýta afurðir Hellisheiðarvirkjunar ON á ábyrgan og umhverfisvænan hátt og skapa verðmæti og ný tækifæri fyrir nýsköpun, samfélag og atvinnulíf. Í Jarðhitagarðinum starfa fyrirtæki á borð við Carbfix, Climeworks og VAXA sem öll hafa það að markmiði að þróa lausnir fyrir sjálfbæra framtíð en einnig var fjallað um fyrirtækin í greininni og samstarfið þeirra á milli.
Það undirstrikar mikilvægi íslensks hugvits og möguleika landsins í orkuskiptum og loftslagslausnum að ON og samstarfsaðilar skuli fá slíka umfjöllun á alþjóðlegum vettvangi.
Hér má lesa greinina í Energy Digital í heild.

Fréttir

Vertu með á fréttabréfinu okkar
Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!