Frétt
·
ON eykur hleðslugetu við IKEA í Kauptúni

Orka náttúrunnar hefur nýverið lokið við verulega uppfærslu á hleðsluaðstöðu við IKEA í Kauptúni í Garðabæ. Með uppfærslunni hefur hleðslugeta svæðisins verið aukin til muna og þjónusta við rafbílaeigendur bætt verulega en stöðvarnar hafa verið mjög vel nýttar frá því þær voru fyrst settar upp.
Nú hefur átta nýjum 240 kW hraðhleðslutengjum verið bætt við þau tengi sem fyrir voru á svæðinu, en þar eru einnig CHAdeMO- og CCS-tengi auk 22 hverfahleðslutengja. Fjölbreyttum hleðsluþörfum notenda ætti því að vera vel mætt, hvort sem um er að ræða hraðhleðslu á ferðinni eða lengri stopp.
„Við hjá IKEA leggjum alltaf áherslu á að gera daglegt líf þægilegra. Aðgengilegar og öflugar hleðslulausnir eru einn þáttur í því, og hafa verið undanfarin 10 ár. Samstarfið við Orku náttúrunnar hefur gengið afar vel og þjónustan er í takt við þær kröfur og væntingar sem við gerum til þjónustuaðila í þessum málum” segir Guðný Camilla Aradóttir markaðs- og samskiptastjóri IKEA. Hún bætir við að það skipti einnig miklu máli að geta stutt starfsfólk í að velja umhverfisvænni samgöngur. „Því bjóðum við upp á sérstakar hleðslustöðvar fyrir starfsfólkið okkar. Með því getum við saman lagt okkar af mörkum við að draga úr umhverfisáhrifum samgangna.“
Að sögn Úlfars Linnet, forstöðumanns einstaklings- og fyrirtækjalausna hjá Orku náttúrunnar, er samstarf við fyrirtæki á borð við IKEA lykilatriði í áframhaldandi uppbyggingu hleðsluinnviða.
„Það er gríðarlega mikilvægt að eiga í góðu samstarfi við fyrirtæki sem vilja taka þátt í að bæta þjónustu við sína viðskiptavini. Ef við ætlum að ná þeim markmiðum sem við höfum sett okkur í orkuskiptum á næstu árum þurfum við öll að taka höndum saman,“ segir Úlfar.
Hann nefnir einnig að ON vinni í dag með fjölmörgum fyrirtækjum og sveitarfélögum um allt land sem vilja koma til móts við sívaxandi hóp rafbílaeigenda.
„Við sjáum aukna eftirspurn eftir hleðslu þar sem fólk er á ferðinni og nýtir þjónustu, – hvort sem það er verslun, afþreying eða annað. Þar skiptir máli að hleðslulausnir séu aðgengilegar og áreiðanlegar.“
Orka náttúrunnar hefur verið leiðandi í orkuskiptum frá upphafi og opnaði sína fyrstu hraðhleðslustöð árið 2014. Í dag rekur fyrirtækið víðtækt hleðslunet með yfir 1.000 tengjum um allt land.
„Við ætlum okkur að vera áfram í fararbroddi. Við finnum fyrir miklu trausti frá fyrirtækjum og samstarfsaðilum sem treysta okkur fyrir þeirri vegferð sem þau eru á, og við leggjum okkur fram um að bjóða upp á lausnir og þjónustu sem standast þær kröfur,“ segir Úlfar.
Uppfærslan í Kauptúni er skýrt dæmi um hvernig samstarf fyrirtækja getur bætt þjónustu við almenning og stutt við áframhaldandi orkuskipti í samgöngum á Íslandi.














