Frétt
·
Oct 31, 2025
Öflug umræða um orkuskiptin þann 11. nóvember

Á undanförnum mánuðum hefur mikil umræða skapast um orkuskiptin – og hvers vegna við höfum ekki klárað þau. Orka náttúrunnar býður til spennandi ráðstefnu í Kaldalóni, Hörpu, mánudaginn 11. nóvember undir yfirskriftinni „Ertu ON í umbreytingu? – Klárum orkuskiptin á Íslandi?“
Markmiðið er að kveikja samtal, skapa vettvang fyrir opna umræðu um næstu skref, áskoranir og tækifærin sem felast í orkuskiptunum og virkja krafta þeirra sem geta haft áhrif á næstu skref orkuskiptanna.
Við ætlum að ræða hvað þarf að gerast til að hægt sé að nýta betur þá innviði sem þegar hefur verið fjárfest í og hvernig mismunandi aðilar geta tekið þátt í að hraða umbreytingunni.
Sérstök áhersla verður lögð á rafbílavæðingu ferðaþjónustunnar, áskoranirnar sem fylgja henni og hvaða hlutverk hver og einn hagaðili gegnir í þeirri þróun.
Dagskrá ráðstefnunnar er spennandi og fjölbreytt, með bæði erindum og pallborðsumræðum. Hún hefst kl. 8:30 með morgunkaffi og léttum veitingum og lýkur á sömu nótum, með léttum veitingum, kaffi og spjalli klukkan, hálf tólf.
Skráðu þig og vertu ON í umbreytingunni!
Dagskrá
08:30 – 09:00 Húsið opnar, kaffi og veitingar í boði
09:00 – 10:15 Erindi
10:15 – 11:00 Pallborðsumræður
11:00 – 11:30 Spjall, kaffi og léttar veitingar
Erindi
Opnunarávarp - Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra
Ertu ON í umbreytingu? Klárum orkuskiptin á Íslandi - Tinna Jóhannsdóttir forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni ON
Orkuskipti í almenningssamgöngum - Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó
Hoppum inn í framtíðina - Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp
Háspenna á hálendi – frá vilja til veruleika - Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds
Pallborðsumræður
Guðjón Hugberg Björnsson, tæknistjóri ON
Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp
Steingrímur Birgisson, forstjóri bílaleigunnar Hölds
Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustusviðs Vegagerðarinnar
Viðburðurinn verður ekki í beinu streymi - sjáumst í Hörpu 11. nóvember!

Fréttir

Vertu með á fréttabréfinu okkar
Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!