Frétt

·

Ný­sköpun þrífst ekki í ó­vissu

Orka náttúrunnar sér nýsköpun sem lykilþátt í að tryggja sjálfbæran rekstur, tæknilega forystu og framtíðarþrótt fyrirtækisins í þágu viðskiptavina, samfélags og umhverfis. Rannsóknir og nýsköpun eru megin drifkraftar í þróun starfseminnar og styðja við stefnu ON um ábyrga nýtingu auðlinda, sjálfbærni og virðisaukandi starfsemi til langs tíma.

Þetta og umræðan undanfarið, um hvort starfsumhverfi nýsköpunarfyrirtækja á Íslandi sé nægilega skýrt og fyrirsjáanlegt, er umfjöllunarefni greinarinnar Nýsköpun þrífst ekki í óvissu sem Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá Orku náttúrunnar ritaði og birtist á Vísi í dag.

Í greininni, bendir Ingunn á að nýsköpun byggi á hugrekki, fjárfestingu og langtímahugsun en að ófyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi geti hamlað framþróun. Hún undirstrikar að fyrirtæki og samfélög þurfi skýrar leikreglur og stöðugt umhverfi til að nýjar hugmyndir geti orðið að veruleika.

Ingunn leggur áherslu á að til að Ísland geti áfram verið leiðandi í nýtingu endurnýjanlegrar orku og þróun nýrra lausna þurfi að skapa aðstæður þar sem nýsköpun fær að dafna. Þar skipti máli að tryggja jafnvægi milli reglusetningar, hvata og langtímastefnu.

Grein Ingunnar er mikilvægt innlegg í umræðu um framtíð nýsköpunar á Íslandi og áminning um að skýr stefna og stöðugleiki eru forsenda þess að hugmyndir verði að raunverulegum lausnum.

„Nýsköpun þarf ekki lof í orði heldur traust í verki. Hún þarf skýr skilaboð, fyrirsjáanlegan farveg og umhverfi sem hvetur fólk og fyrirtæki til að þora að þróa, prófa og byggja upp. Verkefnið er skýrt: að tryggja að regluverk og framkvæmd hins opinbera styðji við nýsköpun með skýrum viðmiðum, samræmdri túlkun og fyrirsjáanleika.“

Ingunn tekur þátt í nýsköpunarviku (Iceland Innovation Week) í viðburðinum Building Together – Innotvation Ecosystems in Energy, Food & Climate sem fram fer í Austurbæ á morgun kl. 11:42. Þar verður fjallað um samstarf fyrirtækjanna í Jarðhitagarði, Climeworks, VAXA Technologies og Carbfix og að sjálfsögðu nýsköpun. 

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!