Frétt
·
May 27, 2025
Metþátttaka og mikilvæg umræða á Samorkuþingi 2025

Samorkuþing, stærsta fagráðstefna landsins í orku- og veitutengdri starfsemi, fór fram dagana 22.–23. maí í Hofi á Akureyri og var að þessu sinni fjölmennara en nokkru sinni fyrr. Um 620 gestir sóttu þingið, þar á meðal fjölmargir fulltrúar Orku náttúrunnar sem tóku virkan þátt bæði með erindum og í umræðum um framtíð orkumála á Íslandi.
Alls hélt starfsfólk Orku náttúrunnar sjö erindi á þinginu þar sem fjölbreytt og spennandi verkefni fyrirtækisins voru kynnt. Þar var meðal annars fjallað um lausnir í nýtingu jarðhita, þróun nýrrar tækni, orkuskipti, nýsköpun og markaðslausnir sem miða að því að tryggja afhendingaröryggi og sjálfbæra orkuvinnslu. Erindin endurspegluðu ekki aðeins mikla þekkingu starfsfólks ON heldur einnig þá framsýni og samfélagslegu ábyrgð sem einkennir starfsemi fyrirtækisins.
Í opnunarávarpi þingsins sem Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, flutti, kom fram að unnið sé markvisst að því að hraða leyfisveitingum á sviði orkumála. Með nýju verklagi og breyttum umboðsreglum er stefnt að því að afgreiðsla mála hjá Umhverfis- og orkustofnun verði að jafnaði 50% hraðari en áður, án þess að slakað sé á umhverfiskröfum og góðri málsmeðferð.
„Undir minni verkstjórn verður umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hagvaxtarráðuneyti,“ sagði ráðherra og lagði áherslu á mikilvægi þess að losa um flöskuhálsa í leyfisferlum og tryggja að aukin eftirspurn eftir orku verði mætt með grænni og endurnýjanlegri orku. Hann hvatti fyrirtæki til þátttöku í vinnustofu um einföldun regluverks þann 5. júní og kallaði eftir „beinhörðum tillögum“ að umbótum.
Á Samorkuþingi 2025 kom vel í ljós hve mikilvæg og öflug orku- og veitustarfsemi er fyrir þróun samfélagsins og efnahagslífsins. Orka náttúrunnar er stolt af því að vera í hluti af þeirri þróun - með sjálfbærni, ábyrgð og nýsköpun að leiðarljósi.

Fréttir

Vertu með á fréttabréfinu okkar
Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!