Heimilið

Hleðsla

Fyrirtæki

Virkjanasvæði

Um ON

Frétt

·

Feb 13, 2026

Margra tonna íhlutir og 60 daga framkvæmd

Um þessar mundir stendur yfir umfangsmikil upptekt á einni af gufuvélum Hellisheiðarvirkjunar. Slík upptekt fer fram á sex ára fresti og er lykilþáttur í því að tryggja áfram örugga og skilvirka orkuframleiðslu.

Upptektin er umfangsmikil framkvæmd sem tekur um 60 daga. Við upptektina er gufutúrbínan stöðvuð og tekin í sundur. Allir íhlutir eru fjarlægðir, hreinsaðir og yfirfarnir áður en vélin er sett saman á ný.

„Þegar við förum í upptekt stoppum við túrbínuna og tökum hana bókstaflega í sundur. Við hreinsum og yfirförum alla íhluti, allt frá minnstu skrúfum upp í margra tonna rótora,“ segir Elvar Aron Björnsson, deildarstjóri orkuframleiðslukerfa hjá ON.

Í myndbandinu neðst í greininni má sjá nánari umfjölllun um upptektina þar sem Elvar Aron útskýrir málið.

Hlutar sem fjarlægðir eru úr vélinni vega tugi tonna. Efri hluti túrbínunnar vegur um 23 tonn, rótor hennar um 20,5 tonn og rafalarótorinn tæp 18 tonn.

20,5 tonna túrbínurótor hífður upp

Gufan sem knýr túrbínuna getur með tímanum valdið útfellingum á íhlutum vélarinnar sem draga úr nýtni hennar. Þá geta slitfletir orðið fyrir miklu álagi, sérstaklega ef raki er til staðar.

„Ef við erum með smá raka í gufunni getur hann virkað eins og sandblástur á stálið. Þess vegna er regluleg upptekt nauðsynleg til að laga það sem hefur slitnað og tryggja að vélin skili áfram hámarksafköstum,“ útskýrir Elvar.

Alls eru um 190 verkþættir sem þarf að ljúka áður en vélin er tekin í rekstur á ný. Þar má nefna yfirferð á kæliturnum, mótorum og viftum, skoðun á aflrofum og spennubúnaði og viðhald á dælum og hringrásarkerfum.

Orka náttúrunnar rekur ellefu gufutúrbínur þar sem aflgetan spannar frá 30 MW upp í 47,25 MW. Reglulegar upptektir eru grundvallaratriði í því að tryggja stöðugan rekstur og hámarksnýtingu auðlindarinnar.

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!