Heimilið

Hleðsla

Fyrirtæki

Virkjanasvæði

Um ON

Frétt

·

Mar 12, 2026

Jarðskjálftavirkni ekki ný tilkomin né bundin við vinnslu

Jarðvarmavinnsla í Hverahlíð hefur í för með sér aukna smáskjálftavirkni en skjálftarnir finnast þó ekki í byggð. Svæðið hefur verið virkt í áratugi og er jarðskjálftavirkni þar ekki ný tilkomin né bundin við vinnslu. Þetta sýna niðurstöður ítarlegra greininga sem ÍSOR vann fyrir Orku náttúrunnar.

Virkt svæði í áratugi

Hverahlíðin er staðsett í Henglinum sem er virkt eldfjall. Á tíunda áratugnum var þar mikil skjálftavirkni sem tengdist kvikuinnskotum og spennubreytingum í jarðskorpunni.

Á tímabilinu 1999–2016 var virkni almennt rólegri, að undanskildum Suðurlandsskjálftunum árið 2000.

Eftir að vinnsla hófst í Hverahlíð árið 2016 varð nokkur aukning í smáskjálftavirkni. Niðurstöður greiningarinnar benda til þess að lítil aukning virðist hafa orðið á ný árið 2024 samfara aukningu í vinnslu úr Hverahlíð.

Virkni sem tengist vinnslu er lítil í samanburði við sögulega náttúrulega virkni á svæðinu. Orka náttúrunnar fylgist grannt með þróuninni og rekur áfram jarðskjálftamælanet í samstarfi við ÍSOR til að tryggja gagnsæi og vöktun til framtíðar.

Helstu niðurstöður

  • Alls mældust 1.618 skjálftar á tímabilinu 1995–2025 með landsneti Veðurstofunnar

  • Langflestir skjálftar voru minni en 1 að stærð

  • Enginn skjálfti mældist stærri en 3,5 á 30 árum

  • Mesta náttúrulega virkni á árunum 1995–1999 tengdist kvikuinnskotum en ekki vinnslu.

  • Sjáanleg aukning í smáskjálftavirkni verður eftir að vinnsla hefst árið 2016.

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!