Frétt

·

Apr 22, 2026

Jarðhiti og náttúruvá eru nátengd fyrirbæri

Útgáfa nýs langtímahættumats Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga hefur vakið athygli og umræðu um stöðu mikilvægra innviða. Þar kemur m.a. fram að jarðvarmavirkjanir og tengd mannvirki séu staðsett á svæðum þar sem náttúruvá getur verið til staðar.

Jarðvarmavirkjanir byggja á jarðhita sem helst finnst á virkum eldfjalla- og jarðhitasvæðum. Það þýðir að sú náttúruvá sem hér er til umræðu er í raun forsenda þeirrar auðlindar sem íslenskt samfélag nýtir daglega til húshitunar, raforkuframleiðslu og annars sem eykur lífsgæði okkar.

Því hefur frá upphafi verið gert ráð fyrir þessari áhættu í hönnun og rekstri virkjana, með það að markmiði að tryggja bæði öryggi og rekstraröryggi til lengri tíma.

Áhætta þekkt og unnið markvisst með hana

Orka náttúrunnar og móðurfélagið, Orkuveitan, hafa um árabil byggt upp þekkingu og verklag sem miðar að því að takast á við þá náttúruvá sem fylgir starfsemi á jarðhitasvæðum. Í því felst meðal annars stöðug vöktun, regluleg endurskoðun áhættumats og þróun viðbragðsáætlana í nánu samstarfi við sérfræðinga og stjórnvöld.

Langtímahættumat Veðurstofunnar styður við þessa vinnu og veitir enn skýrari heildarmynd af mögulegri þróun til framtíðar. Slík gögn nýtast til að styrkja áframhaldandi vinnu við forvarnir og uppbyggingu, áfallaþol og rekstur innviða.

Samspil náttúru og samfélags

Jarðhiti er ein af mikilvægustu auðlindum þjóðarinnar og undirstaða lífsgæða á Íslandi. Nýting hans krefst þess að unnið sé í nánu samspili við náttúruna með virðingu fyrir henni og skýra sýn á þá áhættu sem henni fylgir. Mikið er lagt upp úr því hjá Orku náttúrunnar að fylgja þeirri stefnu.

Orka náttúrunnar mun áfram leggja áherslu á ábyrga orkuvinnslu, öfluga vöktun og virkt samstarf við stjórnvöld og samfélagið allt  með það að markmiði að tryggja örugga og sjálfbæra orku til framtíðar.

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!