Frétt
·
Jarðskjálftahrina hefur ekki haft áhrif á rekstur Hellisheiðarvirkjunar

Undanfarinn rúman sólarhring hefur staðið yfir jarðskjálftahrina vestan við Húsmúla á Hengilssvæðinu. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands hafa rúmlega 500 skjálftar mælst á svæðinu frá því hrinan hófst að morgni 31. maí.
Stærsti skjálftinn mældist 4,5 að stærð klukkan 13:45 í dag og fannst hann vel í Hellisheiðarvirkjun. Skjálftinn hafði þó engin áhrif á rekstur virkjunarinnar og engin röskun hefur orðið á starfseminni. Engar breytingar hafa verið gerðar á rekstri eða niðurdælingu Hellisheiðarvirkjunar undanfarna daga.
Jarðskjálftar og skjálftahrinur eru ekki óalgengar á þessu svæði og varð sambærileg hrina þar í júní árið 2024. Samkvæmt mati jarðvísindamanna bendir ekkert til annars en að um náttúrulega skjálftavirkni sé að ræða.
Orka náttúrunnar hefur verið í sambandi við Veðurstofu Íslands og mun áfram fylgjast náið með framvindu mála.













