Frétt
·
Hvað gera verkefnastjórar í vinnunni?

Verkefnastofa Orku náttúrunnar gegnir lykilhlutverki í að leiða áfram fjölbreytt fjárfestingaverkefni fyrirtækisins en alla jafna eru yfir 100 verkefni í gangi hjá ON. Meðal stærstu verkefna sem Verkefnastofan stýrir um þessar mundir eru svokallað borholuprógramm, stækkun varmastöðvar á Hellisheiði og endurnýjun stjórnkerfis á Nesjavöllum.
Verkefnastofan kemur að verkefnum strax á frumstigi og fylgir þeim eftir allt þar til framkvæmdum lýkur. Hlutverk verkefnastjóra er meðal annars að samhæfa vinnu ólíkra fagaðila, halda utan um framgang verkefna og tryggja að hugmyndir verði að raunverulegum framkvæmdum.
„Það getur verið flókið að útskýra nákvæmlega hvað verkefnastjórar gera,“ segja þau Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri Verkefnastofu ON og Alexandra Einarsdóttir og Einar Kristinsson, verkefnastjórar fjárfestingaverkefna hjá ON. Þau ræða það í nýjum þætti hlaðvarpsins Orkan í náttúrunni, sem og starf verkefnastjóra, hlutverk Verkefnastofu, hvað þeim finnst skemmtilegast við starfið og hvaða áskoranir þau takast á við í vinnunni.
Í þættinum fá hlustendur einnig innsýn í hvernig verkefni þróast frá fyrstu hugmynd að fullunninni framkvæmd og hversu mikilvægt samstarf og góð verkefnastýring eru í uppbyggingu innviða Orku náttúrunnar.














