Frétt
·
Hávaði frá borholu í Hverahlíð

Íbúar í Hveragerði og nágrenni kunna að hafa orðið varir við hávaða sem stafar af blæstri nýrrar borholu Orku náttúrunnar, HE-68, í Hverahlíð.
Holan var boruð nýverið sem hluti af jarðhitaleit ON. Um þessar mundir er verið að láta hana blása til að hreinsa hana eftir borun og meta afköst hennar. Þetta er mikilvægt skref áður en hægt er að taka ákvörðun um frekari nýtingu holunnar og fyrstu vísbendingar eru mjög jákvæðar.
Þrátt fyrir að hljóðdeyfir sé á holunni fylgir blæstrinum óhjákvæmilega einhver hávaði sem getur borist til byggða, sérstaklega við ákveðnar vindáttir. Blásturinn stendur yfir í um tvær vikur í viðbót ef allt gengur samkvæmt áætlun og er eðlilegur hluti af því ferli sem fylgir upphleypingu og prófun nýrra jarðhitahola.
Orka náttúrunnar upplýsir viðeigandi aðila, þar á meðal Hveragerðisbæ og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, áður en slík vinna hefst. Við biðjum íbúa velvirðingar á því ónæði sem hávaðinn kann að valda og þökkum fyrir sýndan skilning.
Ávinningurinn af þessari vinnu er mikilvægur því hún stuðlar að aukinni þekkingu á auðlindinni og getur styrkt framtíðarorkuframleiðslu á svæðinu.
Hér að neðan má sjá myndband þar sem Ásdís Benediktsdóttir, auðlindaleiðtogi ON, fer yfir ferlið sem fylgir upphleypingu þegar holan NJ37 var látin blása í lok síðasta árs.

Fréttir

Viltu fá fréttir frá okkur?
Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!