Frétt
·
Jun 19, 2025
Glóð rís í Jarðhitagarði ON
Glóð rís í Jarðhitagarði ON

Ný miðstöð nýsköpunar, samstarfs og þekkingarmiðlunar sem mun rísa í hjarta Jarðhitagarðs Orku náttúrunnar við Hellisheiðarvirkjun fær nafnið Glóð. Haldin var samkeppni um nafn hússins og voru úrslit keppninnar gerð opinber við hátíðlega athöfn í Hellisheiðarvirkjun á miðvikudag.
Yfir 1300 tillögur að nafni bárust og endurspegluðu mörg nafnanna kjarnann sem nýtt húsnæði mun byggja á; nýsköpun, sjálfbærni og samvinnu. Nafnið Glóð stóð upp úr hjá dómnefnd keppninnar. Glóð er lítil en kraftmikil, og táknar bæði eldmóð og möguleika. Nafnið minnir á að öll nýsköpun hefst sem lítil glóð, sem getur orðið að eldi ef henni er gefin næring og skjól.
Við val á nafni hafði dómnefndin, sem í sátu Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups, Silja Bára R. Ómarsdóttir, tilvonandi rektor Háskóla Íslands, Þór Sigfússon, stofnandi og stjórnarformaður Íslenska Sjávarklasans og Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá Orku náttúrunnar, tvö meginatriði í huga; að nafnið fangaði anda og markmið hússins, og að það nyti sín alþjóðlega, því markhópur Jarðhitagarðs nær víða.
Tíu manns sendu inn tillöguna Glóð og var Kristín Grímsdóttir verðlaunuð fyrir fyrstu innsendingu nafnsins og Sigurður Trausti Karvelsson var verðlaunaður fyrir bestu röksemdarfærslu fyrir nafninu.
Viljayfirlýsingar við HÍ, HR og Orkídeu undirritaðar
Tilefnið var einnig nýtt til að undirrita viljayfirlýsingar um öflugt samstarf við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Orkídeu, með það að markmiði að Glóð verði lifandi vettvangur rannsókna, nýsköpunar og þróunar.
Fyrsta verkefnið sem fer inn í Glóð kallast Geolab – rannsóknaraðstaða sem HÍ, HR og Orka náttúrunnar þróa saman með stuðningi úr samstarfssjóði háskólanna. Þessi fyrirhugaða rannsóknaraðstaða verður einstök á heimsvísu með beinu aðgengi að dýrmætum auðlindum Jarðhitagarðs.
Einnig var undirrituð viljayfirlýsing við Orkídeu, samstarfsverkefni um sjálfbæra nýsköpun á Suðurlandi. Með Orkídeu fæst tækifæri til að þróa ný verkefni í orkutengdri nýsköpun og hringrásarhagkerfi – í takt við okkar framtíðarsýn fyrir Jarðhitagarðinn.
Orku náttúrunnar þakkar öllum sem tóku þátt í nafnaleitinni og hlakkar til að byggja upp þetta nýja samfélag, með hugmyndum, fólki og samstarfi sem gefur Glóð eldsneyti til að vaxa og verða að lifandi og kraftmiklu fyrirbæri – svo vitnað sé í röksemdafærslu Sigurðar Trausta Karvelssonar fyrir nafninu Glóð.
Röksemdafærsla Sigurðar Trausta Karvelssonar:
„Hún er lítil, en voldug. Hún er oft ósýnileg utan frá en inniheldur gríðarlega möguleika. Ef henni er veitt rétt umgjörð – skjól frá vindi, nægt eldsneyti og fær örlitla hreyfingu – þá getur hún vaxið, breiðst út og orðið að miklum eldi - eldi sem lýsir upp myrkur, hitar og umbreytir umhverfinu.
Á sama hátt fæðist hugmynd oft sem daufur neisti – smá pæling, óljós tilfinning eða lausn á vandamáli. Í fyrstu virðist hún brothætt og lítils metin. En með umhyggju, stefnu og réttri næringu í formi rannsókna, samstarfs og þróunar, þá getur hún vaxið og orðið að lifandi og kraftmiklu fyrirbæri.
Rétt eins og eldur getur breiðst út og haft víðtæk áhrif, getur ein hugmynd breytt atvinnugreinum, samfélögum – jafnvel heiminum – ef henni er sinnt með skýrri sýn og þrautseigju. Þeir sem sjá möguleikann í henni og vita hvernig á að rækta hana, eru þeir sömu og móta framtíðina."
Þau sendu einnig inn tillöguna Glóð og fengu aukaverðlaun:
• María Sigríður Guðjónsdóttir
• Ragnheiður Guðmundsdóttir
• Marta Jónsdóttir
• Sif Svavarsdóttir
• Rut Jónsdóttir
• Brynhildur Stefanía Jakobsdóttir
• Bjarki Bárðarson
• Ásdís H. Bjarnadóttir

Fréttir

Vertu með á fréttabréfinu okkar
Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!