Frétt

·

Gangsetning vélar er ekkert grín!

Í Hellisheiðarvirkjun er sjaldnast mikil lognmolla. Þar vinna sérfræðingar af ólíkum sviðum saman að því að tryggja örugga afhendingu rafmagns og heits vatns til samfélagsins, starf sem felur í sér stöðuga vöktun, viðhald, endurnýjun og margt fleira.

Viðhald og endurbætur eru ómissandi hluti af rekstri virkjana. Þó að framleiðslan sjálf sé oft ósýnileg notendum, er stöðugt unnið að því á bak við tjöldin að tryggja að búnaðurinn starfi með öruggum og skilvirkum hætti. Það getur falið í sér allt frá reglubundnum skoðunum og fyrirbyggjandi viðhaldi til umfangsmikilla verkefna eins og gangsetningar eftir viðgerðir eða uppfærslur.

Nýverið fór fram gangsetning á vél 6 í Hellisheiðarvirkjun eftir viðhaldsstopp. Samskiptateymi Orku náttúrunnar fékk að fylgjast með og í myndbandinu hér neðst í fréttinni gefst tækifæri til að sjá hvernig gangsetningin gekk og fá innsýn inn í eitt af þeim fjölmörgu verkefnum sem starfsfólk virkjunarinnar sinnir daglega.

Gangsetning vélar er nákvæmt og krefjandi ferli þar sem þörf er á fjölbreyttri þekkingu og reynslu starfsfólks. Þar koma saman sérfræðingar í rekstri, rafmagns- og vélbúnaði sem vinna saman að því að koma kerfum aftur í fullan gang.

Störf innan Orku náttúrunnar eru afar fjölbreytt hvort sem horft er á virkjanareksturinn eingöngu eða fyrirtækið í heild. Okkur finnst gaman að geta gefið innsýn inn í daglegan rekstur stærstu jarðvarmavirkjunar í Evrópu og sýnt hvað okkar öfluga starfsfólk fæst við í vinnunni við að framleiða heitt vatn og rafmagn með sjálfbærum hætti.

Við mælum með áhorfi á þetta áhugaverða myndband!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!