Frétt

·

Franski utanríkisráðherrann heimsótti Hellisheiðarvirkjun

Franski utanríkisráðherrann, Jean-Noël Barrot, heimsótti í vikunni Hellisheiðarvirkjun Orku náttúrunnar ásamt viðskiptsendinefnd þar sem hópurinn kynnti sér íslenskar lausnir á sviði endurnýjanlegrar orku og loftslagsmála.

Heimsóknin var hluti af opinberri heimsókn ráðherrans til Íslands og gaf gestum tækifæri til að kynnast því hvernig jarðhiti hefur lagt grunn að orkuskiptum og sjálfbærri þróun á Íslandi.

Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá Orku náttúrunnar, flutti erindi um nýtingu jarðhita á Íslandi og hvernig endurnýjanleg orka hefur stuðlað að aukinni orkuöryggi, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslensks samfélags. Í erindinu var jafnframt fjallað um þau tækifæri sem felast í áframhaldandi þróun jarðhitanýtingar og mikilvægi nýsköpunar við að hámarka verðmæti endurnýjanlegra auðlinda. Var ráðherrann og sendinefndin sérstaklega áhugasöm um Jarðhitagarð Orku náttúrunnar sem nú er verið að byggja upp á svæðinu. 

Heimsóknin endurspeglar þann vaxandi alþjóðlega áhuga sem er á íslenskri þekkingu á jarðhita og þeim lausnum sem þróaðar hafa verið hér á landi á sviði endurnýjanlegrar orku og loftslagsmála. Orku náttúrunnar telur mikilvægt að miðla þeirri reynslu sem byggst hefur upp í gegnum áratuga nýtingu jarðhita og eiga samstarf við aðila sem vinna að sjálfbærri orkuframtíð.

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!