Frétt
·
Feb 9, 2026
Frábært Norðurljósahlaup ON í góðu veðri og mikilli stemningu!

Norðurljósahlaup ON var haldið um helgina í miðbæ Reykjavíkur. Hlaupið var virkilega vel heppnað og tóku yfir þúsund hlauparar þátt í góðu veðri og frábærri stemningu. Hlaupið er um fimm kílómetra skemmtiskokk og er hluti af Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar en þetta er fyrsta árið sem Orka nátttúrunnar er aðalstyrktaraðili hlaupsins.
Þátttakendur upplifðu borgina í nýju ljósi þar sem helstu kennileiti voru upplýst í tilefni hátíðarinnar. Emmsjé Gauti hitaði hlauparana upp með tónlist í Listasafni Reykjavíkur áður en lagt var af stað. Þátttakendur fengu sérstakan skráningarpakka sem innihélt m.a. armband sem blikkaði í takt við tónlistina og túpu af andlitsmálningu, sem gerði þeim kleift að vera hluti af ljósasýningunni og skapaði skemmtilega stemningu. Á leiðinni voru hátt í 20 skemmtistöðvar með ljósum og tónlist, sem sköpuðu einstaka upplifun fyrir alla aldurshópa. DJ Dóra Júlía, Gógó Starr, Pilkington Props og Sirkus Íslands voru meðal þeirra sem héldu uppi stuðinu.
ON þakkar hlaupurum kærlega fyrir þátttökuna sem og öllum þeim sem komu að því að gera þetta eftirminnilega hlaup að veruleika. Að sjálfsögðu heldur stuðið áfram að ári en búið er að opna miðasölu fyrir Norðurljósahlaup ON 2027 og í tilefni því verður takmarkaður fjöldi miða á sérstöku „forkaupstilboði“.
Skráðu þig í dag og taktu þátt í gleðinni á næsta ári.

Myndir: Bjarni Baldursson

Fréttir

Viltu fá fréttir frá okkur?
Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!