Frétt

·

Fjölskyldugleði á Bæjarhálsi

Mikil gleði ríkti á Bæjarhálsi þegar starfsfólk Orkuveitunnar, móðurfélags Orku náttúrunnar, bauð fjölskyldum sínum í heimsókn á dögunum.

Markmiðið með því að opna dyrnar fyrir fjölskyldumeðlimum starfsfólks var að gefa þeim innsýn í þau fjölbreyttu störf sem unnin eru daglega í Orkuveitunni og dótturfélögunum öllum og að efla tengsl, stolt og samkennd innan samstæðunnar.

Óhætt er að segja að vel hafi tekist til þar sem gestir á öllum aldri nutu fjölbreyttrar dagskrár þar sem boðið var upp á þrautir, leiki, tónlist og veitingar. Yngstu gestirnir voru duglegir að taka þátt í þrautum og leikjum á meðan fullorðnir fengu tækifæri til að kynnast betur vinnustaðnum og verkefnunum.

Við þökkum öllum sem mættu fyrir komuna og þeim lögðu hönd á plóg við að gera viðburðinn sem best heppnaðan fyrir bæði starfsfólk og fjölskyldur þeirra.

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!