Fréttir
17. september 2018

Berglind Rán nýr framkvæmdastjóri ON

Ákveðið hefur verið að forstöðumaður fyrirtækjamarkaða ON, Berglind Rán Ólafsdóttir, taki tímabundið við starfi framkvæmdastjóra ON en ekki forstöðumaður tækniþróunar, eins og áður var tilkynnt.

Berglind er sameindalíffræðingur með MBA próf frá IESE í Barcelona. Hún kom til starfa hjá Orku náttúrunnar fyrir ári og hafði þá meira en tíu ára reynslu af viðskiptaþróun meðal annars hjá Landsvirkjun, Medis og Íslenskri erfðagreiningu.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.