Frétt
·
Apr 12, 2022
Bensínstöð verður hleðslustöð
Bensínstöð verður hleðslustöð

„Við hjá Orku náttúrunnar fögnum auðvitað þeirri þróun að bensínstöðvum sé að fækka og hleðslustöðvum að fjölga. ON hefur verið leiðandi í orkuskiptunum allt frá því að við settum upp fyrstu hleðslustöðina hér á landi og þetta er rökrétt skref á þeirri vegferð. Við höfum átt gott samstarf við Orkuna og vonandi mun þessi þróun halda áfram.“ segir Silja Mist Sigurkarlsdóttir, markaðsstjóri Orku náttúrunnar.
Orkan tilkynnti í að dag að hún hyggist hætta að selja bensín við Fellsmúla eftir rúm 50 ár og breyta bensínstöðinni í öfluga hleðslustöð fyrir rafknúin ökutæki í samstarfi við ON. Gert er ráð fyrir að stöðin hefji starfsemi fyrir lok árs 2023.
Rekin hefur verið bensínstöð á þessum stað í Fellsmúla allt frá árinu 1971 en það eru yfirvofandi orkuskipti og loftslagsstefna Reykjavíkurborgar, sem kveður á fækkun bensínstöðva, ásamt framtíðarstefnumörkun og vistvænum áherslum Orkunnar sem leiddu til þessarar ákvörðunar. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, Vífill Ingimarsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Orkunnar, og Silja Mist Sigurkarlsdóttir, markaðsstjóri Orku náttúrunnar, undirrituðu samkomulag þessa efnis í dag.
Samstarf Orkunnar og Orku náttúrunnar hófst árið 2017. Í dag má finna hleðslustöðvar frá ON á átta Orkustöðvum, þrjár í Reykjavík og fimm á landsbyggðinni en stefnt er að fjölgun þeirra samhliða orkuskiptum bílaflotans.
„Sú mikla ánægja sem hefur verið með hleðslustöðvarnar á stöðvum Orkunnar er okkur hvatning til að halda áfram á þessari braut. Við vitum að rafbílum fjölgar nú hratt, þeir voru meira en helmingur seldra bíla á síðasta ári. Þetta þýðir að fjölga þarf hleðslustöðvum og Orkustöðvarnar eru vel staðsettar nærri stofnbrautum og því vinsælar hjá ökumönnum. Borgin hefur kynnt áherslur sínar um að fækka bensínstöðvum innan borgarmarkanna og sú stefna fer vel saman við okkar áætlanir um að vera lykilaðili í orkuskiptunum, í samvinnu við ON. Ég vil þakka þeim og Reykjavíkurborg fyrir gott samstarf í þessu verkefni,“ sagði Vífill Inigmarsson framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Orkunnar.
„Ég er mjög ánægður með þessa þróun. Hér eru að koma hleðslustöðvar fyrir rafbíla í stað jarðefnaeldsneytis. Með þessu erum við að færast nær grænni framtíð. Borgin beitir samningum og grænum hvötum til að ná markmiðum í loftslagsmálum og þéttingu byggðar sem þýðir að íbúðahverfin eflast og lífsgæði íbúanna batna,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.

Fréttir

Vertu með á fréttabréfinu okkar
Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!