Frétt
·
Mar 21, 2025
Árni Hrannar og Baldur tóku þátt í ársfundi Samorku

Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri ON og nýkjörinn stjórnarmeðlimur í Samorku, samtökum orku- og veitufyrirtækja, tók þátt í pallborðsumræðum um raforkumál á ársfundi Samorku á miðvikudag ásamt þeim Herði Arnarsyni, forstjóra Landsvirkjunar, Magnúsi Kristjánssyni, forstjóra Orkusölunnar og Tómasi Má Sigurðssyni, forstjóra HS Orku. Þeir ræddu m.a. það sem er framundan í orkuöflun hjá fyrirtækjunum og hvernig staðan verður eftir 30 ár.
Baldur Hauksson, deildarstjóri Tækniþróunar hjá ON, tók jafnframt þátt í pallborðsumræðum á fundinum þar sem hann og þeir Elías Jónatansson, forstjóri Orkubús Vestfjarða og Eyþór Björnsson, forstjóri Norðurorku ræddu um hlutverk jarðhita í orkuskiptunum, samspil raforku og varmaframleiðslu sem og möguleika í nýtingu glatvarma.
Samorka fagnar 30 ára afmæli samtakanna í ár og við óskum þeim til hamingju með afmælið og vel heppnaðan ársfund.

Fréttir

Vertu með á fréttabréfinu okkar
Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!