Frétt
·
Jun 18, 2025
Áhrif hækkunar raforkukostnaðar fyrir dæmigerð heimili talin óveruleg

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynnti í vikunni skýrslu um þróun raforkukostnaðar sem Raforkueftirlitið vann að beiðni ráðherra.
Í máli Jóhanns Páls kom m.a. fram að raforkuverð á Íslandi hafi verið að meðaltali 40 prósentum lægra en meðaltalið í Evrópu síðustu ár í evrum á hverja kílówattstund. Ef leiðrétt er fyrir mismunandi tekjustigi landa fyrir árið 2024 kemur í ljós að af öllum löndum Evrópu var kaupmáttur heimila gagnvart raforku langmestur á Íslandi.
Ráðherra nefndi einnig að það hvíldi á honum sú ábyrgð að viðhalda þeirri sterku stöðu, að Ísland sé samfélag þar sem heimili og fyrirtæki hafi öruggan aðgang að raforku á viðráðanlegu verði. En til þess að svo megi verða þurfi bæði að ýta undir aukna framleiðslu raforku og styrkja umgjörð raforkumarkaðarins.
Hér má lesa nánar um það sem kom fram í máli Jóhanns Páls við kynningu skýrslunnar.
Í skýrslunni sjálfri kemur m.a. fram að hækkanir á raforkukostnaði hafi átt sér stað á tímabilinu, en áhrifin hafi mismikið vægi eftir notendahópum. Raforkukostnaður almennra notenda (heimila og fyrirtækja) hafi hækkað talsvert en áhrif hækkunarinnar fyrir dæmigerð heimili séu talin óveruleg þar sem hún nemi um 0,1% af meðal ráðstöfunartekjum heimila á tímabilinu. Einnig að raforkukostnaður stórnotenda, s.s. álvera og gagnavera, hafi hækkað umtalsvert á tímabilinu. Áhrifin séu ólík á milli greina, en í einhverjum tilfellum er aukinn kostnaður til þess fallinn að hafa áhrif á alþjóðlega samkeppnishæfni stórnotenda. Raforkukostnaður garðyrkjubænda hafi hækkað miðað við tekjur, en greiðslur hins opinbera vegna ylræktar og markaðsverð framleiðsluvara hafi í mörgum tilfellum vegið á móti áhrifum hækkunarinnar. Þá hafi birst jákvæð óbein áhrif vegna þróunar raforkukostnaðar líkt og bætt orkunýtni og raforkuöryggi.
Hér má lesa skýrslu Raforkueftirlitsins Þróun raforkukostnaðar og áhrif á notendur .

Fréttir

Vertu með á fréttabréfinu okkar
Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!