Um rafræna vöktun
Orka náttúrunnar (ON) er ábyrgðaraðili vöktunar sem á sér stað með gæslumyndavélum hjá virkjunum og virkjunarsvæðum ON. Tilgangur vöktunarinnar er í öryggis- og eignavörsluskyni og fer hún fram til að gæta lögmætra hagsmuna ON m.t.t öryggis- og eignavörslu.
Unnið er með myndefni sem verður til við vöktunina þar sem sjá má einstaklinga sem farið hafa um hið vaktaða svæði og athafnir þeirra. Allt myndefni er aðgengilegt ON sem hefur umsjón með framkvæmd vöktunarinnar. Þess er gætt að aðgengi sé takmarkað við það starfsfólk sem þarf á því að halda starfs síns vegna. Því skal þó haldið til haga að efni með upplýsingum um slys eða refsiverðan verknað getur jafnframt verið afhent lögreglu. Þá kann að koma til þess að myndefni verði afhent tryggingafélagi sé það talið nauðsynleg.
ON bendir á að þau sem sæta vöktun gæslumyndavéla eiga rétt á að fá aðgang og eða afrit af efninu svo lengi sem réttindi annarra koma ekki í veg fyrir það. Að öðru leyti fer um réttindi skv. III. kafla laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. nánar ákvæði í III. kafla GDPR. Til að tryggja skjóta og rétta afgreiðslu er mælst til þess að beiðni um aðgang og eða afrit af efni sé send á netfangið ohudeild@on.is
Þau sem sæta rafrænni vöktun eiga rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd ef þau telja að vinnsla persónuupplýsinga þeirra gangi gegn persónuverndarlögum.
Persónuverndarfulltrúi Orkuveitu og dótturfélaga er Hörður Helgi Helgason, lögmaður á Landslögum, Borgartúni 26, 105 Reykjavík.
Sími 520-2900
personuverndarfulltrui@or.is
Að öðru leyti fer um vinnslu persónuupplýsinga samkvæmt stefnu ON um upplýsingaöryggi og persónuvernd.










