Frétt

·

Apr 22, 2026

Hvað er þetta REMIT?

REMIT er reglugerð ESB sem í einföldu máli fjallar um heiðarleika og gagnsæi á heildsölumörkuðum með raforku. Þar er horft til svipaðra reglna og þekktar eru og gilda á fjármálamörkuðum. Lög sem byggja á reglugerðinni taka gildi um áramót og krefst það töluverðs undirbúnings sem starfsfólk Orku náttúrunnar vinnur nú að.

Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Orkan í náttúrunni fjalla lögfræðingarnir Valgerður B. Eggertsdóttir leiðtogi hagaðilatengsla hjá ON og Íris Lind Sæmundsdóttir, lögmaður hjá Orkuveitunni um REMIT, hvað felst í reglugerðinni, hvert markmið hennar er og hvaða áhrif reglugerðin hefur á ON.

Meðal þess sem kemur fram í máli þeirra Völu og Írisar er að reglugerðin felur í sér þrjú kjarnaatriði sem eiga að styðja við og tryggja heiðarleika og gagnsæi á raforkumarkaði:

  1. Kröfur um upplýsingaskyldu - hún varðar annars vegar innherjaupplýsingar sem geta haft verðmyndandi áhrif á markaði og hins vegar reglubundna upplýsingagjöf um fjármálupplýsingar og stöðu í kerfinu.

  2. Bann við innherjasvikum – bannað er að nota innherjaupplýsingar til að kaupa raforku á meðan markaðurinn hefur ekki vitneskju um upplýsingarnar.

  3. Bann við markaðssvikum – bannað er að sýna af sér einshvers konar háttsemi sem gefur villandi merki til markaðar um framboð og eftirspurn á raforku.

Hjá Orku náttúrunnar er nú unnið að því að tryggt verði að kröfur og skyldur sem leiða af þessari löggjöf verði uppfylltar, „múr“ verði á milli sölu- og framleiðsludeilda og að starfsfólk sé í stakk búið að vinna eftir því sem reglugerðin segir.

Meira um það í spjalli þeirra Írisar og Völu í hlaðvarpsþætti Orkunnar í náttúrunni

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!