Frétt
·
Sep 14, 2023
Hjálmar Helgi tekur við nýju sviði hjá ON

Hjálmar Helgi Rögnvaldsson mun leiða nýtt svið Viðskiptaþróunar og orkumiðlunar hjá Orku náttúrunnar. Hjálmar kemur inn í framkvæmdastjórn félagsins en hann hefur starfað hjá ON síðustu 9 ár.
Hið nýja svið mun sinna orkumiðlun, orkukaupum, samningum við stórnotendur, öflun nýrra viðskiptatækifæra á stórnotendamarkaði, uppbyggingu Jarðhitagarðs ON og hinum ýmsu greiningum á raforkumarkaði.
Framtíð jarðhitagarðs í mótun
„Þetta brýnir okkur enn frekar í þeirri vegferð sem við höfum verið á enda mikið af tækifærum sem þarna felast. Eitt þeirra felst í uppbyggingu Jarðhitagarðs ON. Um þessar mundir standa yfir miklar framkvæmdir hjá Climeworks í garðinum en auk þess er metnaðarfull vinna við framtíðarstefnumótun garðsins í fullum gangi. Það eru því vissulega spennandi tímar framundan hjá Orku náttúrunnar,“ segir Hjálmar Helgi.
Auk þessara breytinga var í vikunni auglýst í starf markaðsstjóra ON sem mun horfa á markaðsmál og vörumerki félagsins og heyra beint undir framkvæmdastjóra.
„Þetta endurspeglar þær áherslubreytingar sem eru að verða hjá fyrirtækinu þar sem við viljum einblína meira á vörumerkið okkar og þau verkefni sem heyra undir hið nýja svið Viðskiptaþróunar og orkumiðlunar. Ég er sannfærður um að breytingarnar munu hjálpa okkur enn frekar í að vaxa og halda betur fókus í þeim krefjandi verkefnum sem framundan eru,“ segir Árni Hrannar Haraldsson framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar.
Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.

Fréttir

Viltu fá fréttir frá okkur?
Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!