Frétt
·
Mar 25, 2026
Snjallmælar gefa viðskiptavinum betri yfirsýn

Snjallmælar dreifiveitnanna hafa jákvæð áhrif fyrir viðskiptavini Orku náttúrunnar. Með þeim er raforkunotkun mæld sjálfkrafa og byggjast reikningar nú í auknum mæli á raunverulegri notkun í stað áætlunar, eins og áður var algengt.
Snjallmælar senda upplýsingar um notkun og því þarf ekki lengur að lesa af mælinum heima. Þetta veitir viðskiptavinum skýrari innsýn í eigin raforkunotkun og betri möguleika á að fylgjast með henni og stýra. Fylgjast má með notkun inni á Mínum síðum ON.
Þegar reikningar byggja á raunnotkun geta þeir verið breytilegir milli mánaða. Algengt er að kostnaður sé hærri yfir vetrarmánuðina þegar notkun er meiri, en lægri yfir sumarið þegar dregur úr henni.
Snjallmælar veita þannig upplýsingar um hvenær notkun á sér stað. Það hjálpar viðskiptavinum að nýta orkuna á hagkvæman hátt og gerir orkufyrirtækjum kleift að greina frávik eða bilanir fyrr.
Með snjallmælum skapast aukin tækifæri til að spara orku, nýta auðlindir á ábyrgan hátt og lækka rafmagnskostnað til lengri tíma.
Ef þú ert með snjallmæli getur þú skráð þig í Orkuvísi ON og þannig haft enn meiri áhrif á þinn raforkureikning.














