Frétt

·

Apr 10, 2026

ON kemur til móts við rafbílaeigendur og knýr áfram orkuskiptin

Í ljósi þess að stjórnvöld hafa ákveðið að lækka virðisaukaskatt á eldsneytisverði á dælu úr 24% í 11% ætlar ON að lækka verð á almennri verðskrá allra hraðhleðslustöðva hringinn í kringum landið.  

Með þessu kemur Orka náttúrunnar til móts við rafbílaeigendur með svipuðum hætti og efnahagsaðgerðum ríkistjórnar er ætlað að gera til að hemja verðbólgu og bregðast við verðhækkunum á olíu vegna stríðsátaka við Persaflóa. Markmiðið er að draga úr áhrifum verðhækkana á íslensk heimili og fyrirtæki. 

Orka náttúrunnar vill leggja sitt af mörkum til að stemma stigu við hækkun verðbólgu en á sama tíma koma til móts við rafbílaeigendur og halda áfram að leiða orkuskiptin sem fyrirtækið hefur verið fremst í að knýja frá stofnun þess. 

Lækkunin endurspeglar lækkun stjórnvalda á virðisaukaskatti á eldsneytisverð og gildir hún frá deginum í dag til og með 31. ágúst líkt og tímabundnar aðgerðir stjórnvalda  Sjá uppfærða verðskrá.

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!