Frétt

·

Ný hvítbók um beina nýtingu jarðhita

Ný hvítbók um beina nýtingu jarðhita var kynnt í útgáfuhófi í Elliðaárstöð í gær. Útgáfan er afrakstur samstarfs fjölmargra aðila í Baklandi Grænvangs sem hafa sameinast um að varpa ljósi á hvernig jarðhiti getur stutt við orkuskipti, nýsköpun og sjálfbæra verðmætasköpun, bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi.

Bein nýting jarðhita gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi og hefur jafnframt verulegt alþjóðlegt gildi, ekki síst í ljósi aukinnar áherslu á orkuöryggi og minni notkun jarðefnaeldsneytis. Markmið hvítbókarinnar er að auka skilning á hagnýtum lausnum, miðla íslenskri þekkingu og reynslu og sýna fram á hvernig jarðvarmi getur orðið lykilþáttur í sjálfbærum orkuskiptum um allan heim.

Fulltrúar frá Orku náttúrunnar voru meðal þeirra sem tóku þátt í vinnu við hvítbókina og Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, ávarpaði gesti við útgáfuna eins og þeir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis, orku og loftslagsráðherra og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og formaður stjórnar Grænvangs.

Ísland í fararbroddi

Í máli Árna Hrannars kom fram að Ísland væri í einstakri stöðu til að leiða þróun á sviði beinnar nýtingar jarðhita. „Við höfum byggt upp einstaka sérfræðiþekkingu í gegnum áratugi og búum yfir reynslu sem vekur athygli um allan heim. Á Hellisheiði sjáum við hvernig hægt er að nýta jarðhitann á fjölbreyttan hátt og skapa verðmæti úr öllum straumum sem falla til við vinnsluna,“ sagði Árni Hrannar. Hann benti á að starfsemi Jarðhitagarðs ON við Hellisheiðarvirkjun væri gott dæmi um þá hringrásarhugsun sem einkenni íslenskan jarðhitageira.

Hvítbókin undirstrikar að bein nýting jarðhita geti skapað verðmæti í fjölmörgum atvinnugreinum, allt frá húshitun og innviðum til landbúnaðar, fiskeldis, ferðaþjónustu og iðnaðar, um leið og hún styður við loftslagsmarkmið og sjálfbæra þróun.

Útgáfan markar jafnframt upphaf alþjóðlegrar kynningar á efninu en hvítbókin verður kynnt á World Geothermal Congress sem fram fer dagana 8.–11. júní undir merkjum Green by Iceland. Þar mun stór hópur íslenskra sérfræðinga, meðal annars frá ON, kynna lausnir, þekkingu og reynslu Íslands á sviði jarðhita.

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!