News

Endurheimt náttúrulegs lækjarfarvegs kynnt á Fagþingi

Magnea Magnúsdóttir, umhverfis- og landgræðslustjóri Orku náttúrunnar, hélt í síðustu viku erindið „Endurheimt náttúrulegs lækjarfarvegs á Hellisheiði“ á Fagþingi Samorku 2026, þar sem hún fjallaði um afar áhugavert nýsköpunarverkefni ON.

Verkefnið felur í sér, eins og heiti erindisins gefur til kynna, að endurheimta náttúrulegan farveg lækjar við Hellisheiðarvirkjun. Þar hafa breytingar á lækjarfarvegum orðið í gegnum tíðina vegna framkvæmda við virkjanir ON​. Farvegir vatns eru orðnir aðþrengdir og farnir að hafa áhrif á starfssemi fyrirtækja og innviða en mikil uppbygging hefur átt sér stað í Jarðhitagarði ON á Hellisheiði.

Í erindinu fór Magnea yfir hvernig ráðist var í verkefnið með náttúrumiðaðar lausnir að leiðarljósi en þetta er í fyrsta sinn sem sambærilegt verkefni er unnið hér á landi með þessum hætti og naut ON liðsinnis sérfræðinga frá Skotlandi við hönnun og framkvæmd nýja farvegarins. Þar var meðal annars beitt svokölluðum grjótpylsum, aðferð sem hjálpar til við að stýra rennsli, draga úr rofi og skapa náttúrulegra vatnsumhverfi.

„Verkefnið sýnir vel hvernig hægt er að samþætta rekstur mikilvægra innviða og metnaðarfulla umhverfisstefnu. Með því að vinna með náttúrunni fremur en gegn henni getum við bæði aukið öryggi á okkar svæðum og skilað umhverfinu í betra horf,“ sagði Magnea í erindi sínu.

Verkefnið á Hellisheiði fellur vel að markmiðum Orku náttúrunnar um ábyrga nýtingu auðlinda og ríka áherslu á góðan frágang og landgræðslu á virkjanasvæðum ON.

Hér má sjá myndband um grjótpylsurnar og viðtal við Magneu.



Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!