News

ON efst á Sjálfbærniásnum í flokki raforkusala í þriðja sinn

Orka náttúrunnar hlaut í vikunni Sjálfbærniásinn í flokki raforkusala, þriðja árið í röð. Prósent, Langbrók og Sjálfbærni standa að Sjálfbærniásnum en hann er samræmdur mælikvarði sem mælir viðhorf íslenskra neytenda til frammistöðu fyrirtækja í sjálfbærnimálum og gerir hlutlausan samanburð á stöðu og þróun á mörkuðum.  

Mælingar ná til helstu markaða á Íslandi og eru framkvæmdar á tímabilinu janúar til og með apríl hvert ár. Tinna Jóhannsdóttir forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni hjá ON tók á móti viðurkenningunni. „Sjálfbærni er öllu starfsfólki Orku náttúrunnar sérstaklega hugleikin og kemur það fram í öllum þeirra störfum og ákvörðunum. Það er okkur því mikið gleðiefni að taka á móti þessari viðurkenningu sem Sjálfbærniásinn er og við erum virkilega stolt og þakklát,“ sagði Tinna.  

Orka náttúrunnar mældist með 63 stig sem flokkast sem góð frammistaða á kvarðanum og var eina fyrirtækið á markaði raforkusala sem náði þeim árangri. Orkusalan fékk 57 stig, HS Orka fékk 56 stig og N1 rafmagn fékk 52 stig, einnig í flokki raforkusala.

Metnaðarfull markmið hjá ON í sjálfbærni- og umhverfismálum  

Orka náttúrunnar er stærsta jarðvarmafyrirtæki landsins, rekur þrjár virkjanir þar sem bæði heitt vatn og rafmagn er framleitt. ON framleiðir þó ekki bara umhverfisvæna orku fyrir heimili, fyrirtæki og farartæki heldur leggur fyrirtækið einnig ríka áherslu á rannsóknir, nýsköpun og sjálfbærni með það fyrir augum að tryggja komandi kynslóðum betri lífsgæði.  

Orka náttúrunnar hefur sett sér metnaðarfull markmið í sjálfbærni- og umhverfismálum og vinnur fyrirtækið ötullega að þeim markmiðum á hverjum degi. ON hefur líka verið í fararbroddi í uppbyggingu hleðsluinnviða og hvatningu til almennings og atvinnulífs um að draga úr kolefnislosun með vistvænum samgöngum og þar spilar ört stækkandi hleðslunet ON stórt hlutverk. 

Orka náttúrunnar er, til viðbótar við það sem nú þegar hefur komið fram, samfélagslega mikilvægt bæði eigendum sínum, sem og samfélaginu öllu. Því erum við einstaklega stolt af því að hljóta Sjálfbærniásinn þriðja árið í röð og er það frábær viðurkenning á metnaðarfullu starfi rúmlega 120 starfsmanna ON. 

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!