News
•
Feb 27, 2026
Breyting á gjalddögum reikninga

Orka náttúrunnar gerir breytingar á gjalddögum og eindögum reikninga. Breytingin tekur gildi þann 1. mars næstkomandi.
Með einföldun fyrir viðskiptavini að leiðarljósi færum við reikninga sem næst raunverulegri rafmagnsnotkun.
Með tilkomu snjallmæla er hægt að mæla raunnotkun á rafmagni og byggja reikningar stórs hluta viðskiptavina ON nú á raunverulegri notkun í stað áætlunar.
Þessu fylgir að gjalddagi færist nær útgáfu reiknings og verða reikningar gefnir út í mánuðinum á eftir notkun. Við vekjum athygli á að reikningar eru breytilegir milli mánaða þar sem rukkað er fyrir raunnotkun. Þá eru þeir oft hærri að vetri og lægri að sumri þar sem notkunin hjá mörgum er meiri á veturna.
Viðskiptavinir ON fá framvegis reikninga í kringum 10. hvers mánaðar með gjalddaga 20. hvers mánaðar. Eindagi verður 13 dögum síðar (í kringum 2.-5. dag næsta mánaðar) hjá einstaklingum en hjá fyrirtækjum verður gjalddagi og eindagi sami dagur, 20. hvers mánaðar.
Hvað gerist í næsta mánuði?
Vegna breytinganna fá viðskiptavinir ON með snjallmæla útgefna tvo reikninga með sitthvorn gjalddagann í mars.
Annar er með gjalddaga þann 5. mars, vegna notkunar í janúar, og hinn með gjalddaga 20. mars, vegna notkunar í febrúar.
· Reikningar einstaklinga verða með eindaga þann 5. mars og 2. apríl.
· Reikningar fyrirtækja verða báðir með eindaga 20. mars.
Þau sem greiða með greiðslukorti verða ekki fyrir neinum áhrifum þar sem ekki er verið að fjölga reikningum heldur aðeins breyta gjalddögum.
Viðskiptavinir ON sem eru ekki komnir með snjallmæla fá engan reikning útgefinn í mars, og verða því með einn gjalddaga þann mánuð, þann 5. mars. Þeir viðskiptavinir fá svo næst reikning í apríl, vegna áætlaðrar notkunar í mars, með gjalddaga 20. apríl.
Við vonum að þessi breyting skýri betur tengsl kostnaðar og notkunar rafmagns, geri reikninga frá ON fyrirsjáanlegri og auðveldi yfirsýn viðskiptavina okkar.
Hér má sjá frekari upplýsingar um breytingarnar.
Svona er ferli reikninga einstaklinga:

Svona er ferli reikninga viðskiptavina:




