News
•
Utanríkisráðherrar Benelux-ríkjanna heimsóttu Hellisheiðarvirkjun

Utanríkisráðherrar Belgíu, Hollands og Lúxemborgar heimsóttu Hellisheiðarvirkjun í gærmorgun þar sem þeir kynntu sér nýtingu jarðhita á Íslandi og Carbfix-tæknina til varanlegrar bindingar koldíoxíðs í bergi.
Maxime Prévot, utanríkisráðherra Belgíu, Tom Berendsen, utanríkisráðherra Hollands, og Xavier Bettel, utanríkisráðherra Lúxemborgar, eru staddir hér á landi í tengslum við fund þeirra með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra.
Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Orkuveitunnar, móðurfélags ON, tók á móti hópnum á Hellisheiði og kynnti starfsemi Orkuveitunnar og fyrirtækja hennar.
Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, fjallaði um jarðhitanýtingu á Íslandi og starfsemi fyrirtækisins á Hellisheiði og Edda Sif Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix, kynnti Carbfix-tæknina. Að kynningum loknum fóru ráðherrarnir í vettvangsferð á Hellisheiði með Eddu Sif og kynntu sér starfsemina nánar.

„Áhugi á jarðhita og íslenskri þekkingu á nýtingu hans fer vaxandi víða um heim. Heimsóknir sem þessi gefa okkur tækifæri til að miðla reynslu okkar af nýtingu jarðhita og þeim lausnum sem hafa verið þróaðar hér á Hellisheiði,“ sagði Árni Hrannar um heimsóknina sem var hluti af dagskrá utanríkisráðherranna hér á landi en þeir áttu einnig fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra.
















