News
•
Fyrirbyggjandi viðhald styrkir rekstraröryggi á Hellisheiði

Á Hellisheiði lauk nýlega umfangsmiklu viðhaldi á þremur 50 MVA vélaspennum þar sem skipt var um gegnumtök spennanna.
Viðhaldið átti rætur að rekja til reglulegra mælinga og ástandsgreiningar á mikilvægum búnaði virkjunarinnar. Mælingar sýndu að tímabært væri að endurnýja gegnumtök eins spennis og í kjölfarið var ákveðið að nýta rekstrarstöðvunina til að sinna sambærilegu viðhaldi á fleiri spennum.
Framkvæmdin var bæði umfangsmikil og sérhæfð. Meðal annars þurfti að meðhöndla spennuolíu, vinna undir lofttæmi og opna þak byggingarinnar til að hægt væri að hífa búnað að og frá spennunum.
Rafal annaðist sérhæfða vinnu við framkvæmdina í samstarfi við ON. Viðhaldi á öllum þremur spennunum lauk samkvæmt áætlun og voru þeir teknir aftur í rekstur að því loknu.
Verkefni sem þetta eru mikilvægur hluti af fyrirbyggjandi viðhaldi virkjunarinnar. Með reglulegum mælingum og ástandsgreiningum getum við gripið inn í á réttum tíma, skipulagt viðhald og þannig stutt við öruggan og traustan rekstur.
















