News
•
Feb 2, 2021
Vetrarhátíð 2021 með áherslu á ljósaverk

Orka Náttúrunnar og Reykjavíkurborg stóðu nýlega fyrir samkeppni um ljósaverk í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Þau tvö verk sem hlutskörpust urðu í samkeppninni munu leika lykilhlutverk í Ljósaslóð Vetrarhátíðar 2021 sem fram fer með breyttu sniði dagana 4.-7. febrúar næstkomandi.
Um er að ræða verkin Samlegð/Synergy eftir Katerina Blahutova og Þorstein Eyfjörð Þórarinsson sem vann fyrsta sæti og verður í garðinum við listasafn Einars Jónssonar og hins vegar verkið Truflun/Interference eftir Litten NystrØm og Harald Karlsson sem verður varpað á Hallgrímskirkju.
Á Ljósaslóð Vetrarhátíðar verður lögð áhersla á ljóslista- og útilistaverk í borgarlandinu. Ljósaslóð Vetrarhátíðar mun því lýsa upp skammdegið á skapandi hátt og mynda skemmtilega gönguleið frá Hallgrímskirkju niður á Austurvöll og að Ráðhúsi Reykjavíkur. Rúmlega 20 ljóslistaverk munu lýsa leiðina og verður þeim varpað á byggingar og glugga öll kvöld hátíðarinnar frá kl 18-21.
Kort af vetrarhátíð (pdf)
Nánari upplýsingar um vetrarhátíð
Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.

Stay updated with our newsletter
Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!