Homes

Charging

Companies

Power plants

About us

EN

News

May 21, 2025

Orkuvísir gerir þér kleift að hafa áhrif á raforkuverðið

Orka náttúrunnar kynnir nýjan breytilegan raforkutaxta - Orkuvísi - sem opnar spennandi möguleika fyrir heimili með snjallmæli. Með Orkuvísi er hægt að hafa bein áhrif á rafmagnsreikninginn með því að stýra notkun eftir því hvenær rafmagnið er ódýrast.

Orkuvísir byggir á klukkutímaverði raforku og endurspeglar raunverulegt markaðsverð hverju sinni. Þannig er hægt að lækka kostnað með því að færa orkufreka notkun yfir á tíma dagsins þegar álagið er minna - til dæmis á nóttunni eða um helgar. Þetta á sérstaklega vel við um rafbílaeigendur sem geta valið hagkvæmari tíma til að hlaða bílinn.

„Þetta er fyrsta skref okkar í að færa raforkunotkun nær viðskiptavinum og hvetja til ábyrgari og meðvitaðri orkunotkunar,“ segir Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar. „Við viljum skapa hvata fyrir fólk til að nýta raforkuna á hagkvæmari hátt og nýta þannig auðlindirnar okkar með ábyrgari hætti.“

Orkuvísir er í boði fyrir heimili sem eru komin með snjallmæli og þar sem dreifiveitan hefur hafið að skila inn raungögnum. Með tilkomu slíkrar tækni er nú hægt að reikna raforkunotkun út frá því hvenær hún á sér stað - ekki bara hversu mikil hún er.

Raforka er misdýr eftir því hvenær sólarhringsins hún er notuð. Þegar eftirspurn er há, til dæmis á morgnana og síðdegis á virkum dögum, hækkar verðið. Þegar eftirspurn er lítil, eins og á nóttunni eða um helgar, lækkar verðið. Þannig geta notendur lækkað eigin orkukostnað með því að stýra notkun á skynsaman hátt.

Markmið ON með Orkuvísi er þríþætt:

  • Að verðskráin, og þá sérstaklega Orkuvísir, endurspegli sem best markaðsverð raforku.

  • Að viðskiptavinir fái betri innsýn í hvernig notkun þeirra hefur áhrif á rafmagnsverðið.

  • Að veita viðskiptavinum möguleika á að lækka orkukostnað með ábyrgri og meðvitaðri notkun.

Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri ON, og Jóhann Ingi Magnússon, forstöðumaður Sölu og þjónustu, ræddu um Orkuvísi, hvernig breytilegi taxtinn virkar, og hvað viðskiptavinir þurfa að hafa í huga í nýjasti þætti Orkunnar í náttúrunni, hlaðvarpi ON.

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!