Homes

Charging

Companies

Power plants

About us

EN

News

Feb 19, 2026

Mikilvægt samstarf í formi þekkingaryfirfærslu, rannsókna og nýsköpunar

Orka náttúrunnar og Jarðhitaskólinn eru nú í samstarfi um þekkingaryfirfærslu, rannsóknir og nýsköpun á sviði jarðhita, sjálfbærrar auðlindanýtingar og umhverfisverndar. 

Jarðhitaskólinn er einn af fjórum skólum GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, sem starfar undir merkjum UNESCO og er ráðuneytisstofnun í utanríkisráðuneytinu en meðal markmiða samstarfs ON og GRÓ er að kynna starfsemi ON og Jarðhitagarðsins fyrir nemendum Jarðhitaskólans, m.a. með heimsóknum í Jarðhitagarð eða Jarðhitasýningu ON. Einnig að meta hvort meistara- eða doktorsverkefni við Jarðhitaskólann geti verið staðsett í Glóð, miðstöð nýsköpunar sem er í mótun innan Jarðhitagarðs, og mun veita aðstöðu fyrir jarðvarmatengdar rannsóknir og nýsköpun. Samstarf við Jarðhitaskólans er mikilvægt skref í að festa Glóð í sessi sem þekkingarsetur jarðhita á heimsvísu sem og miðstöð nýsköpunar.

„Við hjá Jarðhitaskólanum hlökkum til samstarfsins og erum sannfærð um að það muni styrkja okkar starf ekki síður en starfsemi Glóðar. Samstarfið verður fyrst og fremst í formi þekkingaryfirfærslu, rannsókna og nýsköpunar,“ segir Bjarni Richter, forstöðumaður Jarðhitaskóla GRÓ.

Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá ON tekur í svipaðan streng og segist stolt af því að taka þátt í starfi GRÓ sem hafi um áratuga skeið verið leiðandi afl í þekkingaruppbyggingu á sviði jarðhita. „Við hjá ON hlökkum til að læra af þeirri miklu reynslu sem starfsfólk GRÓ hefur og fá að vera hluti af tengslanetinu sem þau hafa byggt upp. Samstarfið er mikilvægt fyrir Glóð og mun vafalaust hjálpa til við að auka veg hennar sem alþjóðleg þekkingarmiðstöð jarðhita.“

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!