Homes

Charging

Companies

Power plants

About us

EN

News

Feb 13, 2020

Breyttir tímar – betri nýting

Breyttir tímar – betri nýting

Þetta var yfirskrift erindis sem Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastýra Orku náttúrunnar, hélt á opnum fundi Félags atvinnurekenda undir yfirskriftinni „Grænt frumkvæði fyrirtækja.“ Markmið fundarins, sem haldinn var þriðjudaginn 11. febrúar, var að vekja athygli á fyrirtækjum sem hafa tekið frumkvæði í umhverfismálum, axlað ábyrgð og gert sér viðskipti úr umhverfisvænum lausnum.

Í erindi sínu ræddi Berglind Rán hvernig hún sér Orku náttúrunnar fyrir sér í hringrásarhagkerfinu. Vísaði hún þar sérstaklega til Jarðhitagarðs ON í Ölfusi. Það er atvinnuþróunarsvæði við Hellisheiðarvirkjun þar sem ON leitast við að laða að fyrirtæki sem nýta hliðarafurðir orkuvinnslunnar með hagkvæmum og arðbærum hætti.

Auk Berglindar héldu erindi á fundinum fulltrúar meðal annars frá Krónunni, sem nýverið hlaut Umhverfisverðlaun atvinnulífsins, Arctic Green Energy og Garra, sem sérhæfir sig í grænum fyrirtækjalausnum.

Sjá önnur erindi sem flutt voru á opnum fundi Félags atvinnurekenda

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!