News

Apr 13, 2026

Vala í stjórn KÍO

Valgerður B. Eggertsdóttir, leiðtogi hagaðilatengsla og sjálfbærni hjá ON, var kjörin í stjórn Kvenna í orkumálum (KÍO) á síðasta aðalfundi félagsins. Ný stjórn var kynnt á KÍO deginum sem haldinn var á dögunum.

Starfsfólk Orku náttúrunnar tók þátt í KÍO deginum sem er fastur liður í starfsemi KÍO og vettvangur fyrir tengslamyndun, innblástur og umræðu um stöðu og framtíð kvenna í orkumálum.

Markmið KÍO er að efla þátt kvenna í orkumálum, styrkja tengsl þeirra og auka áhrif þeirra innan greinarinnar. Félagið var stofnað fyrir tíu árum og hefur vaxið hratt á síðustu misserum. Um 300 nýir félagar hafa bæst við á síðustu tveimur árum og eru félagar nú orðnir rúmlega 900 talsins.

Einn af hápunktum KÍO dagsins var svokallað sófaspjall þar sem Halla Tómasdóttir forseti Íslands tók þátt. Þar kom meðal annars fram að einstök staða Íslands, með öfluga nýtingu jarðhita og sterka stöðu í jafnréttismálum, veki athygli á alþjóðavettvangi og sagði Halla meðal annars að jarðhitinn og jafnrétti væru fullkomin blanda sem önnur lönd vildu líka ná.

Halla lagði áherslu á mikilvægi þess að segja sögu íslenskrar orkunýtingar þar sem við Íslendingar erum fremst í heimi í nýtingu jarðvarma og við eigum að nýta tækifærið til að breiða út þá sögu og vera stolt af okkar styrkleikum og koma þeim á framfæri sem víðast.

Starfsfólk ON þakkar fráfarandi stjórn KÍO fyrir gott starf og fræðandi og kraftmikinn KÍO dag um leið og við óskum nýrri stjórn velfarnaðar í starfi.

Ný stjórn KÍO

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!