News

Hvernig er að reka eina stærstu jarðvarmavirkjun heims?

Hvernig er að bera ábyrgð á daglegum rekstri einnar stærstu jarðvarmavirkjunar heims? Hvernig lítur venjulegur vinnudagur út hjá þeim sem reka virkjun og þurfa að sinna gríðarlega fjölbreyttum og hátt í óteljandi verkefnum? Hvað stendur upp úr eftir rúm tuttugu ár í starfi við rekstur Hellisheiðarvirkjunar?

Óskar Gunnarsson er deildarstjóri framleiðslu í Hellisheiðarvirkjun. Hann hefur starfað við virkjunina frá því áður en hún var gangsett eða frá september 2005. Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Orkan í náttúrunni svarar hann þessum spurningum auk þess sem þeir Árni Hrannar Haraldsson framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar ræða um daglegt líf í virkjuninni.

Meðal þess sem Óskar kemur inn á í þættinum er hvernig rekstur Hellisheiðarvirkjunar hefur þróast í gegnum árin, hvernig vinnslan hefur orðið markvissari og hvernig aukin áhersla er lögð á að nýta auðlindina sem best.

„Við erum búin að bíða eftir að það komi rólegur tími uppi í virkjun í tuttugu ár,  hann er ekki enn kominn,“ segir Óskar og bætir við að fjölbreytt verkefni og stöðug úrlausnarefni séu einmitt það sem geri starfið skemmtilegt.

Hann leggur jafnframt áherslu á að rekstur jarðvarmavirkjunar sé fyrst og fremst öflug teymisvinna. „Að reka virkjun er mjög mikil teymisvinna, sérstaklega jarðvarmavirkjanir. Þetta er samvinna með gufuveitu, verkstæði, verkefnastofu og mörgum öðrum. Það eru töluverð umsvif á hverjum einasta degi.“

Þrátt fyrir að virkjanirnar séu almennt mannlausar á kvöldin og um helgar er alltaf vakthafandi starfsfólk tilbúið að bregðast við ef eitthvað kemur upp á. Við erfiðar vetraraðstæður gista vaktmenn jafnvel í virkjuninni til að tryggja öruggan rekstur.

Aðspurður hvað standi helst upp úr eftir tvo áratugi í starfi segir Óskar að skemmtilegast sé þegar stór verkefni ganga upp.

„Það er gaman að keyra virkjun þegar allt gengur vel og þegar mikið er í gangi. Þegar eru framkvæmdir þarf að gera breytingar, hugsa fram í tímann og skipuleggja. Þegar allt gengur upp er gaman.“

Hann horfir einnig björtum augum til framtíðar.

„Framtíðin er björt og við munum keyra þessa virkjun áfram. Ég sé hana keyra næstu tuttugu árin, ef við höldum áfram að bora og afla meiri orku. En það verða líka fleiri afurðir.“

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni hér.

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!