News
•
Framhaldsskólakennarar kynntu sér nýsköpun í loftslags- og orkumálum

Framhaldsskólakennarar víðs vegar að af landinu heimsóttu Hellisheiðarvirkjun á dögunum í fræðsluferð þar sem sjónum var m.a. beint að loftslagsmálum, sjálfbærri orkunýtingu og nýsköpun. Markmið ferðarinnar var að efla þekkingu kennara á þeim lausnum og verkefnum sem þróuð hafa verið á Hellisheiði og geta nýst í kennslu um umhverfis- og loftslagsmál.
Dagskráin hófst í Jarðhitasýningu ON þar sem þátttakendur fengu kynningu frá Laufeyju Guðmundsdóttur sýningarstjóra, á starfsemi og hlutverki sýningarinnar við að vekja áhuga á jarðvísindum, orkumálum og loftslagsáskorunum.
Dr. Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá Orku náttúrunnar, tók á móti hópnum fyrir hönd Orku náttúrunnar og kynnti starfsemi fyrirtækisins, sjálfbæra nýtingu jarðhita á Hellisheiði og þau fjölbreyttu verkefni sem hafa þróast í tengslum við auðlindina. Hún fjallaði einnig um Jarðhitagarð ON, þar sem fyrirtæki og frumkvöðlar vinna að því að þróa nýjar lausnir sem byggja á fjölnýtingu jarðhita, auk þess að kynna djúpborunarverkefni Orkuveitunnar.
Kennararnir fengu jafnframt góða innsýn í starfsemi Carbfix og vísindin á bak við varanlega bindingu koltvísýrings í bergi. Dr. Kári Helgason fjallaði um leið kolefnis frá andrúmslofti til steinda og sýndi hvernig kolefni hefur bundist náttúrulega í bergi í milljónir ára og setti það í samhengi við þær loftslagsbreytingar sem eiga sér stað.
Dr. Katrín Steinþórsdóttir kynnti rannsóknir og jarðfræðina sem liggja að baki verkefnunum og hvernig Carbfix-tæknin getur nýst víðar en á Íslandi. Hún sýndi jafnframt hve miklir möguleikar felast í bindingu í bergi á Íslandi og setti þá í samhengi við þær lausnir sem nýta þarf til að sporna við hlýnun jarðar. Þar kemur langfyrst að skipta yfir í endurnýjanlega orkugjafa sem er forgangsatriði og Orka náttúrunnar hefur verið leiðandi í að gæta að þeim auðlindum sem við búum við.
Mikill áhugi einkenndi heimsóknina og sköpuðust líflegar umræður um loftslagsmál, jarðfræði, nýsköpun og framtíð orkumála. Kennararnir komu með fjölmargar spurningar og ábendingar um hvernig miðla megi flóknum vísindum á aðgengilegan hátt til nemenda og hvernig efla megi áhuga ungs fólks á vísindum og sjálfbærni.
Heimsóknin undirstrikar mikilvægi samstarfs milli atvinnulífs, vísinda og menntakerfisins. Með því að opna glugga inn í raunveruleg verkefni á sviði orku- og loftslagsmála skapast tækifæri til að efla skilning á þeim áskorunum sem samfélagið stendur frammi fyrir og þeim lausnum sem verið er að þróa til framtíðar.
Takk fyrir komuna kæru kennarar og fyrir áhugann á starfsemi ON og góðar umræður.
















