Homes

Charging

Companies

Power plants

About us

EN

News

Mar 4, 2020

Tímabundin lokun Jarðhitasýningar Orku náttúrunnar í Hellisheiðarvirkjun

Í ljósi þeirrar óvissu sem uppi er vegna kórónaveirunnar á Íslandi hefur Orka náttúrunnar ákveðið að loka tímabundið Jarðhitasýningunni í Hellisheiðarvirkjun.

Starfsemi Jarðhitasýningarinnar er ólík annarri ferðaþjónustu að því leyti að hún er í sama húsi og virkjunarrekstur.

Starfsfólk Hellisheiðarvirkjunar sinnir mikilvægri grunnþjónustu með því að halda starfsemi virkjunarinnar gangandi og er gripið til lokunarinnar til að draga úr líkum á að lykilstarfsfólk veikist.

Ekki er grunur um smit og er því eingöngu um varúðarráðstöfun að ræða. Lokunin er ein af aðgerðum OR og dótturfyrirtækja til að fyrirbyggja að grunnþjónusta fyrirtækjanna raskist.

Yfir vetrartímann koma hátt í 200 gestir á sýninguna á degi hverjum. Lokunin tekur gildi frá og með fimmtudeginum 5. mars. Starfsfólk Jarðhitasýningarinnar vinnur að því að leita lausna fyrir þá hópa sem þegar hafa bókað heimsóknir. ON er að upplýsa hagsmunaðila um þessa ákvörðun, sem verður endurskoðuð reglulega.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!