News
•
Jun 4, 2025
Orka náttúrunnar tekur yfir hleðsluþjónustu hjá Íslandshótelum

Orka náttúrunnar (ON) hefur tekið yfir rekstur og þjónustu við allar hleðslustöðvar við Íslandshótel um allt land. Íslandshótel eiga og reka 17 hótel og veitingastaði auk funda- og ráðstefnuaðstöðu undir vörumerkjunum Fosshótel og Hótel Reykjavík. Uppsetningu nýrra ON hleðslustöðva á þessum stöðum er nú lokið og eru þær komnar í notkun.
ON er talið leiðandi í hleðslulausnum á Íslandi og leitaði Íslandshótel því til ON til að taka við þjónustunni. Orka náttúrunnar hefur hlotið Íslensku ánægjuvogina sex ár í röð fyrir framúrskarandi þjónustu og eru því miklar væntingar bundnar við samstarfið.
„Við hjá Íslandshótelum höfum átt mjög gott samstarf við ON og höfum mikla trú á að samstarfið haldi áfram að þróast með hagsmuni viðskiptavina okkar að leiðarljósi,“ segir Hjörtur Valgeirsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Íslandshótela.
Ferðahleðslustaðsetningar ON hjá Fosshótelum eru eftirfarandi:
Fosshótel Austurland
Fosshótel Baron
Fosshótel Hellnar
Fosshótel Húsavík (með hraðhleðslustöð)
Fosshótel Jökulsárlón
Fosshótel Mývatn
Fosshótel Núpar
Fosshótel Reykholt
Fosshótel Stykkishólmur
Fosshótel Vatnajökull
Fosshótel Vestfirðir
Við Fosshótel Húsavík hefur ON sett upp nýja hraðhleðslustöð, sem gerir gestum kleift að hlaða rafbílinn á styttri tíma en áður. Þá er ON einnig að skoða möguleika á að setja upp fleiri hraðhleðslustöðvar við önnur Fosshótel í framtíðinni.
Með nýrri ferðahleðslustöð ON á Fosshótel Vestfjörðum er ört vaxandi þörf fyrir hleðsluinnviði á þessu svæði mætt. Rafbílaeigendum fjölgar jafnt og þétt á Vestfjörðum og má gera ráð fyrir að hleðslustöðvum á svæðinu fjölgi á næstu misserum, bæði vegna aukinnar umferðar og markvissra aðgerða ON til að styðja við sjálfbæra samgöngukosti um allt land.
Auk ferðahleðslustöðvanna hefur ON sett upp sex hverfahleðslutengi við Grand Hótel Reykjavík, sem henta bæði fyrir gesti hótelsins og íbúa eða aðra sem eiga leið um hverfið.
ON hlakkar til áframhaldandi samstarfs við Íslandshótel og styður með þessum aðgerðum við markmið beggja fyrirtækja um sjálfbærari ferðaþjónustu og umhverfisvænni samgöngur á Íslandi.

Stay updated with our newsletter
Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!