News

•

Hvar værum við stödd án rafbílavæðingarinnar?

Kristín Björk Bjarnadóttir, deildarstjóri einstaklings- og fyrirtækjalausna hjá Orku náttúrunnar, fjallar um stöðu rafbílavæðingarinnar, uppbyggingu hleðsluinnviða og mikilvægi þess að halda orkuskiptunum áfram í nýrri grein sem birt var á Vísi.

Samkvæmt gögnum Orkustofnunar voru rafmagns- og tengiltvinnbílar 24% af íslenska bílaflotanum í júní á þessu ári. Það sem af er árinu hafa tæplega 4.900 rafbílar verið nýskráðir, samanborið við rúmlega 1.700 bensín- og dísilbíla. Langflestir nýir bílar sem bætast við íslenska bílaflotann eru því nú að fullu eða að hluta knúnir raforku.

Í greininni kemur fram að notkun hraðhleðslustöðva hafi aukist að undanförnu og að rafbílar séu í auknum mæli orðnir aðal ferðabíll fjölskyldna, líka í lengri ferðum um landið. Þessi þróun hafi þó ekki orðið af sjálfu sér. Hún byggist á tækniframförum, uppbyggingu hleðsluinnviða, fjárfestingum fyrirtækja og stuðningi stjórnvalda. Kristín fjallar  einnig um fyrirhugaða lækkun framlaga til Loftslags- og orkusjóðs og bendir á að orkuskipti séu ekki sjálfgefin og að áfram þurfi vilja, fjárfestingar og skýra sýn til lengri tíma.

Í greininni setur hún einnig áhrif rafbílavæðingarinnar í samhengi. Frá upphafi rafvæðingar samgangna hafi verið komið í veg fyrir bruna á um 180 milljónum lítra af jarðefnaeldsneyti, sem samsvarar um 440 þúsund tonnum af CO₂. Á þessu ári einu muni rafbílaflotinn draga úr innflutningi jarðefnaeldsneytis um sem nemur um 45 milljónum lítra, eða um 115 þúsund tonnum af CO₂.

Verkefnið sé því ekki lengur að sannfæra fólk um að rafbílar virki, heldur að halda áfram að skapa skilyrði fyrir hraðari orkuskipti og tryggja að sífellt stærri hluti samgangna landsmanna gangi fyrir innlendri og endurnýjanlegri orku.

„Við höldum ótrauð áfram því við trúum því að við séum á betri stað en við værum ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað,“ segir Kristín í lok greinarinnar sem er hægt að lesa í heild sinni á Vísi.

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!