News
•
Gríðarleg tækifæri í umhverfi til vaxtar

Hvar er best að byggja upp starfsemi sem byggir á orku? Helga Kristín Jóhannsdóttir deildarstjóri Jarðhitagarðs Orku náttúrunnar svarar því og fleiri spurningum í umfjöllun sinni um Jarðhitagarð í viðtali sem tekið var í Hellisheiðarvirkjun þar sem Jarðhitagarður stendur á rúmlega 100 hektara svæði.
Fulltrúar fyrirtækja í garðinum, þeir Kristinn Hafliðason, framkvæmdastjóri VAXA Technologies og Jan Wurzbacher, forstjóri Climeworks, koma einnig fram í myndbandinu og segja frá því hvernig samstarf og ábyrg auðlindanýting skapar tækifæri sem erfitt er að finna annars staðar. Helga Kristín segir einnig frá framtíðarsýn garðsins og þeirri hugmyndafræði sem liggur að baki uppbyggingunni en Jarðhitagarðurinn er samfélag fyrirtækja sem byggja starfsemi sína á endurnýjanlegri orku, hringrásarhugsun og ábyrgri nýtingu auðlinda. Á svæðinu við Hellisheiðarvirkjun fá fyrirtæki aðgang að raforku, vatni, landi og öðrum auðlindum sem skapa kjöraðstæður fyrir nýsköpun og vöxt.
„Í Jarðhitagarðinum bjóðum við velkomin framsækin fyrirtæki til að nýta auðlindir á svæðinu á ábyrgan hátt og skapa virði með hringrásarhugsun að leiðarljósi,“ segir Helga Kristín í myndbandinu. „Kostir þess að vera í Jarðhitagarði eru margvíslegir – síðast en ekki síst er það tækifærið til þess að byrja smátt og vaxa innan garðsins.“
Lifandi samfélag nýsköpunar
„VAXA væri ekki til ef ekki væri fyrir Jarðhitagarð,“ segir Kristinn hjá VAXA Technologies og bætir við að öll tækni fyrirtækisins sé byggð í kringum það sem Hellisheiðarvirkjun hafi upp á að bjóða og að fyrirtækið nýti alla orkustrauma sem það þarf, beint frá virkjun.
Kristinn segir samstarfið við ON hafa gengið afar vel og tekur Jan, forstjóri Climeworks, í svipaðan streng varðandi það. Hann segir samstarf við önnur fyrirtæki í garðinum gera Climeworks kleift að þróa og stækka kolefnisföngunarlausnir sínar auk þess að gera rekstur fyrirtækisins skilvirkari.
Í myndbandinu kemur skýrt fram hvernig fyrirtæki með ólíka starfsemi geta notið góðs af sömu auðlindum og jafnframt skapað verðmæti hvert fyrir annað með hringrásarhugsun að leiðarljósi sem er eitt af markmiðum Jarðhitagarðs.
Hluti af framtíðarsýn ON
Helga Kristín segir Jarðhitagarð vera orðinn mikilvægan hluta af framtíðarsýn Orku náttúrunnar. „Við horfum til þess á næstu árum að stækka og efla Jarðhitagarð. Þau fyrirtæki sem við sæjum fyrir okkur inni í garðinum eru margvísleg, meðal annars landbúnaðarfyrirtæki og líftæknifyrirtæki og öll þau sem eru með sjálfbærnihugsun að leiðarljósi og vilja nýta auðlindastraumana á svæðinu eins vel og hægt er.“
Hér er hægt að horfa á myndbandið.

Stay updated with our newsletter
Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!