Homes

Charging

Companies

Power plants

About us

EN

News

Jun 4, 2025

Gott tækifæri til að læra og miðla þekkingu

Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, og Hjálmar Helgi Rögnvaldsson, forstöðumaður Viðskiptaþróunar og orkumiðlunar, sóttu alþjóðlegu ráðstefnuna Power Summit 2025 í Brussel sem fram fór 3.-4. júní.

Á ráðstefnunni komu saman tækniþróunarfyrirtæki, orkufyrirtæki og fjárfestar víðsvegar að úr Evrópu til að ræða framtíð raforkumála og áskoranir tengdar orkuskiptum, nýsköpun og orkuöryggi. Ráðstefnan er haldin af Eurelectric, samtökum evrópskra orkufyrirtækja, og er meðal stærstu viðburða ársins í raforkugeiranum.

Markus Rauramo, forstjóri finnska orkufyrirtækisins Fortum, er nýr forseti Eurelectric, Evrópusamtaka rafiðnaðarins, sem Samorka er aðili að en Samorka eru hagsmunasamtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi. Undir stjórn Rauramo mun ný forysta Eurelectric leggja áherslu á metnaðarfulla framtíðarsýn um græna rafvæðingu Evrópu sem styrki samkeppnishæfni álfunnar og orkuöryggi. Þá sé mikilvægt að stíga ný skref til að kanna hvernig stafræn umbreyting og notkun gervigreindar skili sem mestum ávinningi í framtíðinni.

Auk þess hittu Árni Hrannar og Hjálmar, ásamt hópi fulltrúa úr íslenska orku- og veitugeiranum, nýráðinn verkefnastjóra erlends samstarfs hjá Samorku, Svein Helgason. Markmiðið með fundinum var að styrkja tengsl innan íslenska orkugeirans gagnvart Evrópu og skoða möguleika á auknu samstarfi í alþjóðlegu samhengi.

„Við höfum hér tækifæri til að miðla þekkingu okkar á nýtingu jarðhita og endurnýjanlegrar orku til samstarfsaðila erlendis,“ segir Árni Hrannar. „Einnig er ráðstefnan gott tækifæri fyrir ON til að læra af því sem aðrir eru að gera og fylgjast með því sem hefur áhrif á orkumarkaðinn.“

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!