News
•
Sep 17, 2025
Viðburður okkar á Heimsýningunni í Osaka vakti mikinn áhuga

Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, var einn þátttakenda í viðburðinum From Iceland to the World: Join the Frontline of Global Green Innovation, sem Orkuveitan ásamt dótturfélögunum Orku náttúrunnar og Carbfix hélt á Heimssýningunni í Osaka síðastliðinn mánudag. Viðburðurinn var vel sóttur en þar sagði Árni Hrannar frá starfsemi og áætlunum fyrirtækisins um að auka orkuöflun á sjálfbæran hátt, áherslum ON í umhverfis- og loftslagsmálum og frá Jarðhitagarði ON.
„Það er ánægjulegt að sjá hve mikill áhugi er á íslenskri orku- og nýsköpunarþekkingu á alþjóðavettvangi. Við hjá Orku náttúrunnar leggjum sérstaka áherslu á að þróa jarðhita á sjálfbæran hátt og deila þeirri reynslu út fyrir landsteinana. Viðburðir eins og þessi í Osaka styrkja tengslin við samstarfsaðila og skapa ný tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif í loftslagsmálum,“ sagði Árni Hrannar.
Viðburðurinn var vel sóttur og voru gestir mjög áhugasamir um nýtingu jarðhita á Íslandi, stefnur og framkvæmdir fyrirtækjanna og nýsköpun á sviði jarðvarma, kolefnisbindingar og hringrásarhagkerfis.
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra Íslands, flutti opnunarræðu viðburðarins og undirstrikaði í henni mikilvægi íslenskra lausna, reynslu og hugvits í baráttunni við loftslagsbreytingar.
Í erindi sínu lýsti Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, einstökum tækifærum Íslands í alþjóðlegu samhengi og hvernig lítil þjóð getur verið leiðandi í grænni orkunýtingu. Einnig fór hann yfir sögu Íslands í orkumálum og hvernig sú ákvörðun að nýta jarðvarma sem orkugjafa í stað kola og olíu leiddi til velgengni landsins.

Hera Grímsdóttir, framkvæmdastýra rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitunni fjallaði, í sínu erindi, um hvernig Ísland hefur þróað jarðhitanýtingu frá fyrstu kynslóð hitaveitu og raforkuframleiðslu yfir í þriðju kynslóðina þar sem nýta á ofurheitan jarðhita. Með því að bora dýpra og heitar en nokkru sinni fyrr opnast nýjar, miklar endurnýjanlegar orkulindir á Íslandi, sem geta einnig gert jarðhita að burðarstoð í alþjóðlegum orkuskiptum
Kristinn Ingi Lárusson, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Carbfix, útskýrði hvernig Carbfix-tæknin bindur koldíoxíð varanlega í bergi. Hann lagði áherslu á skalanleika og útflutningshæfi lausnarinnar og þann vaxandi áhuga sem nú er á samstarfi við alþjóðlega aðila
Viðburðurinn, sem var virkilega vel heppnaður, staðfesti að Ísland á sæti í fremstu röð þegar kemur að nýsköpun í sjálfbærum orkulausnum og loftslagsaðgerðum og að íslensk verkefni og hugmyndir hafa alþjóðlegt vægi. ON, Orkuveitan og Carbfix þakka þátttakendum, gestum og samstarfsaðilum fyrir mikinn áhuga og skemmtilega og uppbyggilega samveru á viðburðinum. Við hlökkum til næstu skrefa og til að sjá hvernig framtíðarverkefni okkar þróast en næstu daga munum við eiga fundi með áhugasömum aðilum til að ræða möguleika á samstarfi og deila þekkingu og reynslu.

Stay updated with our newsletter
Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!