News
•
Atvinnuveganefnd kynnti sér starfsemi ON og fyrirtækjanna í Jarðhitagarði

Raforkuöryggi, verðmætasköpun og fjölnýting jarðhita voru í brennidepli þegar atvinnuveganefnd Alþingis heimsótti Hellisheiðarvirkjun og Jarðhitagarð Orku náttúrunnar í dag. Nefndin kynnti sér starfsemi ON og heimsótti VAXA Technologies og Climeworks, en bæði fyrirtækin eru í Jarðhitagarðinum.
Hjálmar Helgi Rögnvaldsson, forstöðumaður Viðskiptaþróunar og orkumiðlunar, Valgerður B. Eggertsdóttir, leiðtogi hagaðilatengsla, og Helga Kristín Jóhannsdóttir, deildarstjóri Jarðhitagarðs tóku á móti nefndinni.
Valgerður kynnti starfsemi ON og helstu verkefni fram undan. Hjálmar fjallaði um raforkuöryggi og lagði áherslu á að ON styðji heilshugar að tryggja heimilum, minni fyrirtækjum og mikilvægum samfélagsinnviðum nægt framboð raforku. Farsælast sé að byggja á reglulegu og óháðu stöðumati og nýta markaðslausnir, sveigjanleika og aukna orkuöflun áður en gripið er til varanlegra skyldna. Jafnframt þurfi að horfa á orkuöryggi í heild, enda framleiðir ON rúmlega helming þess heita vatns sem nýtt er á höfuðborgarsvæðinu. Aðgerðir til að tryggja raforkuöryggi mega ekki veikja varmaöryggi. Helga Kristín fjallaði síðan um Jarðhitagarðinn, framtíðarsýn hans og þau tækifæri sem felast í að skapa aukin verðmæti með hringrásarhugsun og fjölnýtingu auðlinda. Einnig var rætt um þá umgjörð og innviði sem styðja við áframhaldandi atvinnuuppbyggingu á svæðinu.
Að kynningum loknum fékk nefndin leiðsögn um starfsemi VAXA Technologies og heimsótti Mammoth, kolefnisföngunarstöð Climeworks. Þar fengu gestir innsýn í ólíka starfsemi fyrirtækja í Jarðhitagarðinum og hvernig nálægð við Hellisheiðarvirkjun og beinn aðgangur að orku og auðlindastraumum hennar skapa einstök skilyrði fyrir starfsemi þeirra.
Heimsóknin var gott tækifæri til að kynna fyrir nefndinni hvernig orkuöryggi, orkuframleiðsla, nýsköpun og ábyrg auðlindanýting geta farið saman og skapað grundvöll fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi og aukna verðmætasköpun.

Nefndin fékk kynningu frá Kristni Hafliðasyni framkvæmdastjóra VAXA Technologies um starfsemi fyrirtækisins.















