News
•
Jul 21, 2020
Upplifun af bestu gerð – Náttúruhlaup ON 15. ágúst

Náttúruhlaup ON, Milli virkjana, verður haldið 15. ágúst nk. Svæðið á milli virkjana ON heitir Hengilssvæðið og þykir stórbrotin náttúruperla og hefur flest allt það sem prýðir íslenska náttúru þ.m.t. áhugavert landslag, hvera- og gígasvæði, fjölbreytt gróðurfar, ár og stöðuvötn.
Hvert liggur leiðin?
Leiðin liggur yfir Hengilinn, frá Hellisheiðavirkjun í suðri, upp á sjálfan Hengilinn og yfir í Nesjavallarvirkjun í norðri. Leiðin er um 16 km á lengd og með 646 metra hækkun. Einnig verður í boði styttri leið, 8 km kringum fræðsluleiðina á Nesjavöllum. Báðar leiðirnar verða vel merktar. 16 km leiðin verður með tvær drykkjastöðvar og tímatöku. Ein af lykiláherslum ON er öryggi í fyrirrúmi. Hjálparsveit skáta Hveragerði mun sjá um öryggisgæslu meðan á hlaupinu stendur.
Keppendum verður boðið upp á súpu og brauð eftir hlaup og allir sem hlaupa fá gjafabréf á Jarðhitasýningu ON fyrir fjölskylduna.
Tímasetningar
Upphaf hlaupsins og mótstjórn verður í Nesjavallavirkjun.
Milli virkjana, 16 km leiðin:
08:15 – Mæting í Nesjavallavirkjun
08:30 – Rúta fer með þá sem ætla að hlaupa 16 km að Hellisheiðarvirkjun þar sem hlaupið hefst
09:15 – Upphitun við Hellisheiðarvirkjun
09:45 – Hlaupið ræst við Hellisheiðavirkjun
Fræðsluleið á Nesjavöllum, 8 km leiðin:
09:30 – Mæting í Nesjavallavirkjun
10:00 – Hlaupið ræst við Nesjavallavirkjun
Skráning fer fram á hlaup.is. Til þess að tryggja sér þátttöku er nauðsynlegt að skrá sig fyrir 14. ágúst. Skráningargjald er 5.000 kr. fyrir 16 km leiðina eða 4.000 kr. fyrir 8 km leiðina. Hægt verður að nálgast hlaupagögnin föstudaginn 14. ágúst hjá ON, Bæjarhálsi 1.
Nánar um svæðið
Hengill er athafnasvæði ON sem rekur jarðhitavirkjanirnar á Nesjavöllum og Hellisheiði. Hengilssvæðið er á meðal stærstu háhitasvæða á Íslandi og tengist þremur eldstöðvakerfum. Svæðið er kjörið til útivistar allan ársins hring og hefur fyrirtækið unnið markvisst að því að búa í haginn fyrir útivistarfólk með neti merktra leiða, upplýsingatöflum, gönguskála og útgáfu gönguleiðakorts allt frá árinu 1990. Í dag má finna 130 km af merktum leiðum í þessari náttúruparadís, þar sem náttúrufegurðin þykir án hliðstæðu.
Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.

Stay updated with our newsletter
Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!