News

Umhverfisvænir verðlaunapeningar úr endurunnu plasti fyrir Jarðvarmahlaup ON

Þátttakendur í Jarðvarmahlaupi ON fá allir verðlaunapening úr endurunnu plasti þegar þeir koma í mark, til minningar um skemmtilegt hlaup í stórbrotnu landslagi Hengilsins.

Í tilefni af því að Jarðvarmahlaupið er haldið í annað sinn hefur Orka náttúrunnar unnið með Plastplan að hönnun og framleiðslu á einstökum verðlaunapeningum sem eru handgerðir úr endurunnu plasti. Verðlaunapeningurinn er umhverfisvænn og er tákn um það hversu mikil áhersla er lögð  á umhverfismál, sjálfbærni og hringrásarhagkerfi hjá Orku náttúrunnar.

„Við vildum gera eitthvað öðruvísi og skapa verðlaunapen­ing sem endurspeglar bæði upplifun hlaupara og þau gildi sem Orka náttúrunnar stendur fyrir. Þegar við kynntumst vinnu Plastplan vorum við viss um að þau væru rétti samstarfsaðilinn,“ segir Tinna Jóhannsdóttir forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni hjá Orku náttúrunnar. Verkefnið fellur vel að áherslum Orku náttúrunnar þar sem endurunnið hráefni fær nýtt líf í stað þess að verða að úrgangi.

Á annarri hlið verðlaunapeninganna sem Björn Steinar hjá Plastplan hannaði má sjá hlaupaleiðina ásamt merki ON, en á hinni hliðinni er nafn hlaupsins ásamt myndrænni túlkun á Hengilssvæðinu þar sem hlaupið fer fram. Hver og einn peningur er handgerður og því er framleiðslan bæði tímafrek og vandasöm, enda þarf að útbúa um 500 verðlaunapen­inga fyrir hvert hlaup.

Jarðvarmahlaup ON hefur notið mikilla vinsælda meðal hlaupara. Líkt og í fyrra seldist upp í hlaupið í ár á skömmum tíma og er því ljóst að hlaupasamfélagið hefur tekið þessum skemmtilega viðburði á Hengilssvæðinu fagnandi.

Hér er hægt að sjá viðtal við Björn Steinar frá Plastplan.

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!