News

Úlfar Linnet nýr forstöðumaður einstaklings- og fyrirtækjalausna ON

Úlfar Linnet hefur verið ráðinn forstöðumaður einstaklings- og fyrirtækjalausna hjá Orku náttúrunnar og tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins.

Úlfar þekkir vel til raforkumála og hefur starfað innan geirans allt frá því hann lauk námi í verkfræði frá DTU árið 2005. Hann kemur til Orku náttúrunnar frá Landsvirkjun þar sem hann stýrði Orkumiðlun. Auk starfa í raforkugeiranum hefur Úlfar unnið við framkomu og ræðumennsku til fjölda ára.

„Við erum afar ánægð með að fá Úlfar til liðs við okkur. Hann býr yfir víðtækri reynslu af raforkumarkaði og djúpum skilningi á þörfum viðskiptavina, bæði fyrirtækja og einstaklinga. Sú þekking mun styrkja okkur í áframhaldandi þróun lausna og þjónustu á tímum hraðra breytinga í orkumálum,“ segir Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar.

Í starfi sínu hjá Orku náttúrunnar mun Úlfar gegna lykilhlutverki í að tryggja framúrskarandi upplifun viðskiptavina og  áframhaldandi þróun fyrirtækisins á sviði orkuskipta í samgöngum, þar á meðal hleðslulausna fyrir einstaklinga, heimili og fyrirtæki.

Úlfar segir nýtt starf afar spennandi. „Ég hlakka mikið til að koma inn í sterkt teymi Orku náttúrunnar. Um þessar mundir eru miklar breytingar á umgjörð raforkuviðskipta sem munu skapa okkur tækifæri til þess að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur. Þá gegnir hleðslunet fyrirtækisins lykilhlutverki í orkuskiptum í samgöngum og hefur ON leitt þá vegferð frá upphafi. Það verður því virkilega spennandi að taka þátt í framþróun markaðarins og halda orkuskiptunum áfram með Orku náttúrunnar.“

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!

Stay updated with our newsletter

Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!