News
•
May 15, 2022
Skjálftinn hafði engin áhrif á virkjanir ON

Jarðskjálfti að stærð 5,1 varð á Hengilssvæðinu í dag. Engin breyting varð á rekstri í aðdraganda skjálftans og skjálftinn hafði engin áhrif á rekstur virkjunarinnar. Skjálftinn mældist á tæplega 8 km dýpi sem er með því allra dýpsta sem við höfum séð á þessu svæði. Mjög ólíklegt er að vinnsla ON hafi áhrif á þessu dýpi.
Hópstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands segir í samtali við fjölmiðla í dag að skjálftinn tengist ekki starfsemi virkjunarinnar á Hellisheiði. Um hefðbundnar jarðhræringar hafi verið að ræða.
Orkuvinnsla á Hengilssvæðinu á sér um 30 ára sögu og mikið magn jarðhitavökva er tekið upp úr jarðhitakerfinu og dælt aftur niður eftir nýtingu þess í virkjunum. Vel þekkt er að jarðhitanýting getur haft áhrif á skjálftavirkni á vinnslusvæðum og nærri þeim og reynslan á Hengilssvæðinu sýnir að stundum fylgir aukin virkni breytingum í rekstri virkjana. Orka náttúrunnar rekur net jarðskjálftamæla á vinnslusvæðunum til að fylgjast náið með skjálftavirkni.
Skjálftarnir höfðu engin áhrif á rekstur virkjunarinnar en þar er unnið rafmagn fyrir alla landshluta og heitt vatn fyrir hitaveituna á höfuðborgarsvæðinu.
Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.

Stay updated with our newsletter
Get the latest news, updates, and special offers delivered directly to your inbox!